Veftré  |  Hafa samband  |  Sjálfboðaliðar  
Tuttugasti og fyrsti hjálparstarfsmaður Rauða krossinn kominn til Haítí 10.06.2010

Gunnar Helgason, hjúkrunarfræðingur, kom til Haítí í dag þar sem hann mun starfa næstu vikur fyrir Rauða kross Íslands á sjúkrahúsi finnska og þýska Rauða krossins í Port-au-Prince. Á vegum Rauða kross Íslands eru nú fimm hjálparstarfsmenn á jarðskjálftasvæðinu, þar sem enn ríkir mikil og sár neyð.

Fyrir á sjúkrahúsinu eru Margrét Rögn Hafsteinsdóttir yfirhjúkrunarfræðingur, Oddfríður Ragnheiður Þórisdóttir deildarhjúkrunarfræðingur og Elín Jakobína Oddsdóttir bráðahjúkrunarfræðingur. 

Kristjón Þorkelsson sem er margreyndur sendifulltrúi Rauða kross Íslands á sviði vatnshreinsunar- og hreinlætismála, hefur starfað fyrir Alþjóða Rauða krossinn á Haítí síðan í febrúar og verður áfram við störf fram í miðjan september.

Gunnar er 21. hjálparstarfsmaður Rauða kross Íslands sem heldur út til starfa við neyðaraðgerðir á Haítí í kjölfar skjálfans mikla fyrir réttum fimm mánuðum.  Þetta er fyrsta starfsferð hans fyrir Rauða krossinn.

Bjarni Árnason, bráðalæknir, lauk störfum sínum á sjúkrahúsi finnska og þýska Rauða krossins nú í byrjun júní, og er hann reiðubúinn til að veita viðtöl um reynslu sína á vettvangi.

Til baka...
Deila þessari frétt: Senda frétt Facebook