|
Árið 1999 var ferðafélagið Víðsýn stofnað. Það er ferðafélag gesta og starfsfólks Vinjar og hefur það markmið að félagsmenn hafi kost á því að ferðast innanlands sem utan- á sem hagkvæmastan hátt og með stuðningi.
Í félaginu eru um 45 virkir meðlimir og í stjórn eru gestir og einn starfsmaður.
Lengri ferðir eru undirbúnar með allt að árs fyrirvara. Fundir er haldnir þar sem fyrirhugaðir heimsóknarstaðir eru kynntir. Unnið er að fjáröflun til að greiða niður ferðir og árlega heldur félagið bingó.
Margsannað er að ferðir Víðsýnar hafa aukið lífsgæði og víðsýni félagsmanna. Flestir í félaginu treysta sér ekki til að ferðast á „sjálfstæðan” hátt af ýmsum ástæðum. Má þar nefna félagslega einangrun, stuðning við lyfjagjöf og lítilla efna.
|