Blóðnasir eru af tvennum toga:
- Fremri blæðing: Slík blæðing er algengust (90%) en þá blæðir gegnum nasirnar.
- Aftari blæðing: Þá blæðir aftur í munninn eða niður í hálsinn. Slík blæðing getur verið alvarlegs eðlis.
Skyndilegar blóðnasir geta bent til of hás blóðþrýstings, sérstaklega ef um fullorðinn einstakling er að ræða.
Hvað gerirðu?
- Láttu þann sem úr blæðir sitja uppi til að draga úr blæðingunni.
- Hallaðu höfðinu á honum svolítið fram til að blóðið renni út um nasirnar en ekki aftur í háls, það getur valdið teppu í öndunarvegi, ógleði eða uppköstum.
- Haltu jafnt (eða láttu viðkomandi gera það sjálfan) um báðar nasir. Minntu viðkomandi á að anda með munninum og spýta öllu blóði út úr sér.
- Leggja má íspoka yfir nefið til að draga úr blæðingunni, sérstaklega ef hún er afleiðing höggs.
- Ef meðvitundarlaust fólk er með blóðnasir er æskilegt að leggja það í hliðarlegu til að fyrirbyggja að blóð renni niður í lungun og reyna svo það sem lýst er hér fyrir ofan.
Leita skal læknishjálpar ef
- Blæðingin stöðvast ekki eftir 10-20 mínútur.
- Þig grunar að blæði aftur í háls.
- Viðkomandi er með háan blóðþrýsting, tekur blóðþynningarlyf eða stóra skammta af magnyl.
- Blæðingin er afleiðing höggs á nefið og þig grunar nefbrot.