Kópavogsdeild
Um Kópavogsdeild
Sjálfboðastarf
Félagsaðild
Alþjóðlegir foreldrar
Alþjóðastarf
Föt sem framlag
Heimsóknavinir
International Parents
Neyðaraðstoð
Starf fyrir fólk með geðraskanir
Ungmennastarf
Viltu tala meiri íslensku?
Námskeið
Útgefið efni
Tenglar
Myndir

Ungt fólk til athafna

Rauði kross Íslands og Vinnumálastofnun hafa gert með sér samning um viðamikið verkefni til að tryggja sjálfboðastörf fyrir allt að 180 unga atvinnuleitendur á aldrinum 18–24 ára. Þátttakendur fá þjálfun til að sinna hefðbundnum sjálfboðaliðaverkefnum hjá deildum Rauða krossins en einnig er gert ráð fyrir nýjum verkefnum. Samningurinn er hluti af átaki félags- og tryggingamálaráðuneytisins og Vinnumálastofnunar Ungt fólk til athafna.

Tilgangur verkefnisins er að stuðla að virkni og starfshæfni ungra atvinnuleitenda og sporna gegn erfiðum félagslegum og heilsufarslegum afleiðingum sem oft fylgja langvarandi atvinnuleysi, auk þess að kynna fyrir fleirum þau fjölmörgu störf og verkefni sem Rauði krossinn sinnir í samfélaginu. Þátttakendur fá þjálfun til að sinna hefðbundnum sjálfboðaliðaverkefnum hjá deildum Rauða krossins en einnig er gert ráð fyrir nýjum verkefnum.

Í samningnum felst að Vinnumálastofnun kostar ráðningu allt að átta verkefnisstjóra hjá Rauða krossinum til að annast fræðslu fyrir sjálfboðaliðana, val á verkefnum, stuðning og eftirlit með þátttöku þeirra í verkefnum og fleira. Rauði krossinn leggur til starfsaðstöðu og stendur undir öðrum kostnaði vegna verkefnisins. Hann sér einnig til þess að þátttakendur séu slysatryggðir við sjálfboðastörfin. Einn verkefnisstjóri er staðsettur hjá Kópavogsdeild.

Ungmenni sem taka þátt í þessu verkefni á höfuðborgarsvæðinu hafa myndað hóp sem þau kalla Takt. Þau útbúa reglulega fréttabréf um starf hópsins og hægt er að sjá þau hér fyrir neðan:

Fréttabréf 1
Fréttabréf 2
Fréttabréf 3
Fréttabréf 4