Aðstoð við fórnarlömb flóðbylgjunnar í Aceh
Rauði kross Íslands var einn af styrktaraðilum Alþjóða Rauða krossins og Rauða krossins í Indónesíu þegar flóðbylgjan reið yfir. Þar var fyrst og fremst um að ræða verkefni á sviði hreinlætis og vatnsöflunar í Biruen héraði á austurströnd Aceh í Indónesíu. Í verkefninu var einnig lögð mikil áhersla á uppbyggingu Rauða krossins í Indónesíu.
Framlag Rauða kross Íslands og annarra styrktaraðila gerði Alþjóða Rauða krossinum (IFRC) og Rauða krossinum í Indónesíu kleift að veita öfluga aðstoð við endurbyggingu samfélagsins eftir flóðbylgjurnar í Aceh. Stuðningur almennings á Íslandi hjálpaði Rauða krossi Indónesíu að bregðast við neyð fórnarlamba á hamfarasvæðum og aðstoða skjólstæðinga sína við að takast sjálfir á við erfiðleikana.
Verkefnið sem Rauði kross Íslands styrkti náði til alls 40 þorpa í Biruen og varð til þess að um 24.000 skjólstæðingar Alþjóða Rauða krossins á þessu svæði fengu bættan aðgang að vatni og hreinlæti. Hluti af verkefninu fólst í því að 80 sjálfboðaliðar úr röðum Rauða kross Indónesíu veittu skjólstæðingum hreinlætisfræðslu.
Manntjón var gríðarlegt vegna flóðbylgjunnar í Aceh
Nærri því fimm ár eru liðin frá því jarðskjálfti 9,1 á Richter varð undan vesturströnd Norður-Súmötru. Jarðskjálftinn átti sér stað 26. desember 2004 og kom af stað flóðbylgju sem eyðilagði stóran hluta Aceh héraðs í Indónesíu og banaði 167.000 manns úr röðum íbúanna.
Smellið hér til að sjá skýrslu Alþjóða Rauða krossins frá 2. september 2009 um ráðstöfun framlags Rauða kross Íslands til hjálparstarfs í Biruen í Indónesíu.
