![]() |
| AjeunJeumpetstjórnstöðin ræðuryfir 10 byggingum sem smíðaðar eru úr flutningagámum auk vöruhúsa,flota af M6 vörubílum og verkstæði. |
![]() |
| Sendifulltrúi Alþjóða Rauða krossins fylgist með skipulagsstarfi Rauða kross deildarinnar í Aceh Tamiang. |
![]() |
| Sjálfboðaliðar Rauða krossins í Indónesíu vinna að skipulagi vatnsveitu. Lögð er sérstök áhersla á kynjajöfnuð í verkefnum Rauðak rossins. |
Vatnsöflun og hreinlæti
50% af fjárframlagi Rauða kross Íslands til hjálparstarfs í Aceh var sérstaklega notað til verkefna Alþjóða Rauða krossins á sviði vatns og hreinlætis. Þessi verkefni voru starfrækt í Aceh og á Nias eyju og skiluðu mjög miklum árangri. Verkefnin komu í veg fyrir farsóttir og leiddu af sér miklar endurbætur á vatnsveitukerfum þeirra svæða sem nutu aðstoðarinnar.
Uppbygging á starfsemi Rauða krossins í Indónesíu
Ein þeirra staðreynda sem fáir veittu athygli í þessum miklu hamförum var að Aceh deild Rauða krossins í Indónesíu missti stóran hluta af starfsmönnum sínum og sjálfboðaliðum. Þeim 25% af framlögum Rauða kross Íslands sem runnu til uppbyggingar á starfsemi Rauða krossins í Indónesíu var sérstaklega varið til að greiða kostnað við öflun og þjálfun nýrra starfsmanna og sjálfboðaliða Rauða kross deildarinnar í Aceh.
Samhæfingarstarf Alþjóða Rauða krossins
Loks fóru 25% af því fé sem sem Rauði kross Íslands lagði til hjálparstarfsins til uppbyggingar á Ajun Jeumpet stjórnstöðinni í Aceh. Þaðan er uppbyggingarstarfi Rauða kross hreyfingarinnar vegna afleiðinga flóðbylgjunnar stjórnað.
Meðfylgjandi skýrsla gerir grein fyrir framlögum Rauða kross Íslands til hjálparstarfs Alþjóða Rauða krossins í Indónesíu eftir flóðbylgjuna sem varð á Indlandshafi 26. desember 2004. Farið er yfir tímabilið 26. desember 2004 til 31. desember 2007. Aðstoðin beindist sérstaklega að vatnsöflun, hreinlæti og uppbyggingu á starfsemi Rauða krossins í Indónesíu. Einnig studdi Rauði kross Íslands samhæfingarstarf Alþjóða Rauða krossins á svæðinu.


