Alnæmisverkefni
Börn og alnæmi
Fjölskyldur
Rauði kross Íslands
Alþjóða Rauða krossiinn
Geinar um alnæmi

Fjölskyldur


Kátir krakkar í þorpinu Nkalo.

Fjölskyldutengsl eru mjög sterk víðast hvar í Afríku. Þegar barn verður munaðarlaust í sunnanverðri Afríku eru það yfirleitt aðrir í sömu fjölskyldu sem taka barnið að sér, t.d. systkini foreldranna. (90% munaðarlausra búa hjá einhverjum úr stórfjölskyldunni.)

En fátækt fólk í fátækum löndum á oftast í erfiðleikum með að taka munaðarlaus börn upp á arma sína og ala þau upp. Rauði krossinn vill auðvelda það, því að best er fyrir börnin að alast upp meðal skyldfólks frekar en að búa á heimilum fyrir munaðarlausa eða lenda á vergangi.  

Rauði krossinn hjálpar börnum sem eiga erfitt vegna alnæmis:
Starfrækt eru athvörf þar sem börnin geta komið, fá að borða, læra og leika sér. Á meðan geta aðstandendur komist í vinnu til að þeir geti framfleytt sér og barninu.

Þau börn sem ganga í skóla fá ýmiss konar aðstoð, t.d. til að borga skólagjöld, kaupa sér skólabúninga og námsbækur.

Patricia, í miðið, er er svolítið feimin. Henni finnst gaman að vera í leikskólanum og í samvistum við alla hina krakkana. Hún segist ætla að verða kennari þegar hún er orðin stór.

Sum börn og aðstandendur þeirra taka þátt í sjálfshjálparhópum þar sem fólk getur rætt um hvernig það getur hjálpað sér sjálft og fengið stuðning frá öðrum í sömu aðstöðu. Börn fá hjálp og leiðbeiningar til að gera minningabækur um foreldra sína áður en þeir deyja. Í minningabókunum eru t.d. minningar foreldranna um fyrstu æviár barnsins, stundum líka erfðaskrá og þar stendur líka hvaða fyrirkomulag á að vera á hlutunum þegar foreldrið fellur frá.

Aðstoð Rauða krossins miðast við þarfir á hverjum stað og getur þess vegna verið mismunandi frá einu héraði til annars og einu landi til annars.

Leikskólinn í Mwansa 

María er líka stjörnunemandi í leikskólanum og er alltaf fyrst til að bjóðast til að sýna gestum og gangandi það sem þau hafa lært. Hún fer létt með að skrifa, syngja og gera það sem kennararnir biðja hana um. Hún hefur öðlast mikið sjálfstraust í skólanum, enda er mikið lagt upp úr því að börnin viti af rétti sínum í þjóðfélaginu og að fullorðnum beri að vernda þau frá illu.
Börn á leikskóla í Mwansa sveitarfélaginu þar sem Rauði krossinn í Malaví hefur rekið leikskóla fyrir börn sem eiga um sárt að binda sökum alnæmis síðan 2003. Þar eru þau undirbúin fyrir skólagöngu með því að kenna þeim leiki, söngva, dansa og létt heimilisstörf, hreinlæti og almennan fróðleik. Þeim er kennt að börn eiga sinn rétt og þau eiga rétt á að njóta verndar frá samfélaginu og fjölskyldunum:

Maria Charles, 6 ára. Missti móður sína úr alnæmi árið 2001 og hefur búið hjá ömmu sinni síðan. Sækir leikskóla Rauða krossins frá því hann var settur á fót árið 2003. Nýtur þess að læra, dansa og syngja og fer fyrir leikskólasystkinum sínum við leik og störf. Ætlar að verða læknir þegar hún er orðin stór svo hún geti hjálpað öðrum sem eiga um sárt að binda.

Patricia Katalwa 6 ára. Missti báða foreldra árið 2001 og hefur búið hjá móðursystur sinni síðan. Er feimin, en finnst gaman að vera í leikskólanum og í samvistum við öll hin börnin. Ætlar að verða kennari þegar hún vex úr grasi.

Lucias Mafukeni, 4 ára. Missti móður sína nýverið úr alnæmi og býr hjá afa sínum og ömmu. Kemur í leikskólann þegar hann getur, en er stundum of veikur til að mæta. Finnst gaman að öllu sem þau læra í skólanum.

Chikumbutso Stafford, 5 ára. Missti pabba sinn úr alnæmi en býr hjá mömmu sinni og systkinum. Vill verða lögreglumaður þegar hann er orðinn stór.