A-Húnavatnssýsludeild
Stjórn
Verkefni

Rauði krossinn A-Húnavatnssýsludeild

Húnabraut 13
540 Blönduósi
452 4998
ahun@redcross.is
Kennitala 690179-0329
Styrkja starfið

A- Húnavatnssýsludeild Rauða krossins var stofnuð 30. ágúst 1975 og mættu þeir Björn Tryggvason formaður Rauða krossins og Eggert Ásgeirsson framkvæmdastjóri á fundinn. Fyrsti formaður var sr. Árni Sigurðsson.
    
Helsta tilefni stofnunar deildarinnar var að það bráðvantaði sjúkrabíl en á þessum tíma var einungis lögreglubifreið staðarins, frambyggður rússajeppi, nothæfur til sjúkraflutninga.

Deildin á húsnæði að Húnabraut 13 og einnig sjúkrabílageymslu við heilbrigðisstofnunina á Blönduósi.

Deildin sinnir helstu verkefnum svo sem neyðarvörnum og skyndihjálparfræðslu.

Starfssvæði deildarinnar er Austur Húnavatnssýsla að frátöldu starfssvæði Skagastrandardeildar.