Í fatasöfnun er tekið á móti hvers kyns fatnaði og skóm, auk þess sem lín og efni eins og gardínur og sængurföt eru vel þegin. Hannyrðavörur svo sem garn, tvinni, tölur, prjónar og þess háttar nýtist einnig vel. Hægt er að koma með fatnaðinn á opunartíma ( 9 – 16 ) eða skila honum í þar til gerða gáma sem staðsettir eru fyrir utan húsnæði deildarinnar. Fataverslun er sem fyrr segir opin virka daga kl. 9 – 16.
Fatasöfnun er stærsta umhverfisverkefni Rauða krossins. Deildir Rauða krossins um allt land safna notuðum fatnaði sem allur nýtist til hjálparstarfs. Um 450 sjálfboðaliðar vinna að fataverkefni Rauða krossins. Það er margþætt, sumir afgreiða í Rauðakrossbúðunum sem er sífellt að fjölga og er að finna víða um landið, aðrir vinna að söfnun og flokkun klæða, og stórir hópar sjálfboðaliða um allt land taka þátt í verkefninu Föt sem framlag, þar sem unnir eru staðlaðir ungbarnapakkar sem sendir eru til systrafélaga Rauða krossins í Malaví og Hvíta-Rússlandi.
Fatasöfnun Rauða krossins er ekki einungis frábær endurvinnsla heldur leggur fólk félaginu lið með því að gefa fatnað og styrkir neyðaraðstoð bæði hér á landi og erlendis.
Fatnaður sem Rauði krossinn fær nýtist þannig:
• hann er seldur beint til útlanda og ágóðinn rennur í Hjálparsjóð Rauða krossins
• hann er flokkaður og gefinn þurfandi hér á landi
• hann er flokkaður og gefinn þurfandi erlendis
• hann er flokkaður og seldur í Rauðakrossbúðunum
