Borgarfjarðardeild
Stjórn
Fatabúð
Foreldramorgnar
Ungmennastarf

Foreldramorgnar

Foreldramorgnar eru samverustundir þar sem foreldrum gefst tækifæri til að koma saman, kynnast og ræða málin. Stutt fræðsla eða kynning er í boði nokkrum sinnum yfir veturinn.

Þetta er frábært tækifæri til að eignast vini, fræðast, finna stuðning, skiptast á skoðunum auk þess sem börnin okkar fá tækifæri til að kynnast og leika við önnur börn.

Leikföng eru á staðnum, aðstaða fyrir börn til að sofa úti í barnavagni og léttar veitingar.

Mæting er frjáls og eru allir foreldrar hjartanlega velkomnir með börn sín.