Á hverri klukkustund sólarhringsins stígur barn á jarðsprengju einhvers staðar í heiminum. Á þeim tíma sem tekur að lesa þessa vefsíðu er líklegt að barn hafi látið lífið í ófriði eða hlotið varanlegt líkamstjón.
Framlög styrktarmanna frá árinu 2004 renna öll til aðstoðar börnum á stríðshrjáðum svæðum.
Þá eru eftir öll þau börn sem halda heilsu en skaddast á sálinni. Heimsmynd barnsins er umturnað í ólgu óvissunnar sem stríð veldur.
Hvað er til ráða? Best væri að binda enda á ófrið. Næstbest er að gera allt sem í mannlegu valdi stendur til að draga úr þjáningum, hlúa að börnunum og hjálpa þeim til að eygja von. Það er meðal annars hlutverk Rauða krossins.
Greinar um Börn í stríði:
