Höfuðborgarsvæðið
Garðabæjardeild
Hafnarfjarðardeild
Mosfellsbæjardeild
Kópavogsdeild
Reykjavíkurdeild

Höfuðborgarsvæðið

Deildirnar á höfuðborgarsvæðinu eru fimm; Garðabæjardeild, Hafnarfjarðardeild, Mosfellsbæjardeild, Kópavogsdeild og Reykjavíkurdeild. Þær halda allar uppi öflugu sjálfboðnu starfi sem miðar að því að aðstoða þá sem búa við þrengingar á ýmsan hátt.

Svæðisráð er sameiginlegur vettvangur deildanna á höfuðborgarsvæðinu. Það er skipað fulltrúum úr öllum deildum og gegna þær formennsku ár í senn. Verkefni svæðisráðs eru fjölbreytt. Meginverkefnin eru miðlun upplýsinga milli deilda og rekstur sameiginlegra verkefna. Sameiginleg verkefni eru meðal annars stuðningur við ungmennastarf, fræðsla fyrir sjálfboðaliða og stuðningur við athvörf Rauða krossins fyrir fólk með geðraskanir.

Eitt umfangsmesta verkefnið sem deildirnar starfrækja á svæðissvísu eru neyðarvarnir og neyðaraðstoð. Neyðarnefnd höfuðborgarsvæðisins er, líkt og svæðisráðið, skipuð fulltrúum allra deildanna á svæðinu. Hún ber ábyrgð á uppfærslu neyðarvarnaáætlana, þjálfun sjálfboðaliða í neyðarvörnum og almennu skipulagi neyðarvarna á svæðinu. Á neyðartímum stjórnar hún aðgerðum Rauða krossins á höfuðborgarsvæðinu. Sérstakur viðbragðshópur er starfræktur á vegum neyðarnefndarinnar sem hefur það hlutverk að sinna neyðaraðstoð vegna atburða sem lenda utan skipulags almannavarna.

Fatasöfnun Rauða krossins er annað mjög umfangsmikið verkefni sem deildirnar standa sameiginlega að. Tekið er við notuðum fatnaði á endurvinnslustöðvum Sorpu. Hluti fatnaðarins er seldur til endurvinnslu og endurnotkunar erlendis, hluti fer til neyðaraðstoðar erlendis en annað er selt í Rauða kross búðunum og er úthlutað til þeirra sem á þurfa að halda hér innanlands. Allur afrakstur af verkefninu rennur hjálparstarfs.


Verkefnisstjóri
Jóhanna Fríða Róbertsdóttir

Farsími: 864 6752
Netfang johannafrida@redcross.is