Vestfirðir
Bolungarvikurdeild
Dýrafjarðardeild
Ísafjarðardeild
Súðavíkurdeild
Súgandafjarðardeild
Önundarfjarðardeild

Vestfirðir

Verkefnisstjóri:
Bryndís Friðgeirsdóttir
Suðurgata 12
400 Ísafjörður
Sími 456 3180
Farsími: 864 6754
Netfang: vestfirdir@redcross.is 


Verkefni deilda á Vestfjörðum
Á norðanverðum Vestfjörðum hafa sex deildir verið í samstarfi og byggt þannig upp öflugt Rauða kross starf á svæðinu. Þessar deildir starfa í Bolungarvík, Ísafirði, Súðavík, Súgandafirði, Dýrafirði og Önundarfirði. Deildirnar í Strandasýslu og V- Barðastrandasýslu eru einnig með í ýmsum verkefnum. Allar deildir vinna grunnverkefni sem tengjast skyndihjálp og neyðarvörnum auk þess að sinna verkefnum sem miða að því að rjúfa félagslega einangrun.

Fatasöfnun
Allar deildir taka á móti fötum. Eimskip flytur fötin endurgjaldslaust til fatasöfnunar á höfuðborgarsvæðinu. Deildir á landsbyggðinni nýta sér þjónustu fatasöfnunar sem sendir föt vestur eftir þörfum fyrir einstaklinga sem á þurfa að halda. Samstarf er við geðræktarmiðstöðina Vesturafl sem rekur nytjamarkað á Ísafirði og tekur á móti fötum. Rauði krossinn í Dýrafirðir er reglulega með prjónakvöld og sendir afurðir sínar í ungbarnapakkana sem eru útbúnir á Patreksfirði og í verslanir félagsins á höfuðborgarsvæðinu.

Námskeið  
Deildirnar á Vestfjörðum eru öflugar í að breiða út þekkingu í skyndihjálp og sálrænum stuðningi með stuðningi gömlu sparisjóðanna sem veittu veglegan styrk til verkefnisins árið 2007. Á hverju ári eru haldin námskeið í almennri skyndihjálp og sálrænum stuðningi fyrir ýmsa hópa í samfélaginu m.a. starfsfólk hjá stofnunum sveitarfélagsins, fyrirtæki, einstaklinga og skólafólk. Mæður með ung börn sem sækja reglulega foreldramorgna hjá Ísafjarðarkirkju fá kynningu í skyndihjálp. Deildirnar gefa öllum nemendum í 10. bekk á svæðinu námskeið í almennri skyndihjálp. Námskeiðið „Börn og umhverfi“ er haldið reglulega. Einnig hafa verið haldin sumarnámskeið fyrir börn á aldrinum 7-12 ára sem kallast Mannúð og menning.

Deildirnar eru með á sínum snærum tvo leiðbeinendur í almennri skyndihjálp og tvo í sálrænum stuðningi sem starfa eingöngu fyrir deildirnar í skyndihjálparfræðslu. Þeir taka reglulega þátt í endurmenntunarnámskeiðum og fræðslufyrirlestrum. Leiðbeinendurnir í sálrænum stuðningi hafa m.a tekið að sér sálrænan stuðning fyrir sjálfboðaliða í björgunarsveitum og almenning í samvinnu við heilsugæsluna.  

Verkefni með skólum
Sú hefð hefur skapast að 10. bekkur á Ísafirði kemur í heimsókn í maímánuði til Rauða krossins og fær fræðslu um félagið. Nemendur koma einnig í starfskynningar á svæðisskrifstofuna. Einnig koma leikskólabörn í heimsókn í tengslum við námsefnið Hjálpfús sem kennt er í öllum leikskólum á svæðinu. Deildirnar fara reglulega í grunnskólana með fræðslu um félagið. Í Menntaskólanum á Ísafirði hefur einnig verið í boði valáfangi í sjálfboðnu starfi. Þar fá nemendur fræðslu um Rauða krossinn, viðhorf og virðingu, skyndihjálp og sálrænan stuðning. Þeir taka einnig þátt í verkefnum deildanna sem sjálfboðaliðar og fara í heimsóknir á ýmsa staði.

Neyðarvarnir  
Rauði krossinn hefur ákveðnu hlutverki að gegna í viðbragðsáætlun almannavarna á Íslandi. Deildirnar uppfæra reglulega neyðarvarnaráætlanir á heimasíðu félagsins. Þar kom fram upplýsingar um  staðsetningu fjöldahjálparstöðva og sjálfboðaliða sem eru á skrá hjá félaginu. Allir fjöldahjálparstjórar eru í boðunargrunni 112 og fá boð samtímis ef til útkalls kemur á svæði deildar. Fjöldahjálparnámskeið eru haldin reglulega og eru fjöldahjálparstöðvar skipulagðar í öllum deildum.

Tombólubörn
Börn á öllum aldri halda reglulega tombólur og færa félaginu peninga. Alltaf eru birtar fréttir og myndir af þessum ungu sjálfboðaliðum og þeir fá einnig fræðslu þegar þeir koma með afraksturinn sem fer til barna í vanda í Afríku.

Kynningar og fræðsla
Sjálfboðaliðar fara í ýmsar heimsóknir til að kynna starf og einstök verkefni Rauða krossins eftir óskum frá stofnunum, félagasamtökum og öðrum áhugahópum.

Samstarfið er við Starfsendurhæfingu Vestfjarða þar sem frætt er um félagið og boðið upp á sjálfboðastörf. Atvinnuleitendur sem fá fræðslu og námskeið í Fræðslumiðstöð Vestfjarða fá einnig reglulega fræðslu um félagið. Allar deildir taka þátt í sameiginlegri kynningarviku sem haldin er hjá félaginu annað hvert ár.

Heimsóknavinur er sjálfboðaliði sem heimsækir gestgjafa sinn að öllu jöfnu einu sinni í viku, oftast klukkustund í senn eða eftir samkomulagi. Verkefnið hentar öllum sjálfboðaliðum sem hafa áhuga á mannlegum samskiptum. Boðið er uppá hefðbundnar heimsóknir inn á einkaheimili og stofnanir eða ökuferðir. Sjálfboðaliðar sækja námskeið sem sérstaklega er ætlað heimsóknavinum.

Geðræktarmiðstöðin Vesturafl
Vesturafl er miðstöð og endurhæfing fyrir fólk með skert lífsgæði sem vegna veikinda eða aðstæðna getur ekki tekið virkan þátt í samfélaginu, í vinnu eða inni á heimili. Markmiðið er að skapa hvetjandi stuðningsúrræði og efla sjálfstraust og ábyrgð til félagslegrar þátttöku í vinnu, námi og úti í samfélaginu. Mikið og gott samstarf er við Vesturafl, sem deildirnar á svæðinu styrkja. Samvinnan er í formi fataflokkunar, öflun sjálfboðaliða, reksturs markaðar og ýmissa sjálfboðaverkefna. Í miðstöðinni er opið hús á aðfangadag í nafni Rauða krossins.

Starf með eldri borgurum
Deildirnar vinna ýmis verkefni með eldri borgurum heima í héraði og á svæðisvísu.
Eftirfarandi verkefni eru sérstaklega ætluð eldri borgurum:
Rauða kross bandið. Sjálfboðaliðar starfa í Rauða kross bandi og heimsækja dvalarheimili, sjúkrahús og aðra staði þar sem sungið er með fólki. Einnig syngur bandið við sérstök tækifæri í Vesturafli.
Harmonikkuball. Dansað er á miðjum degi af og til yfir veturinn í Edinborgarhúsinu á Ísafirði þar sem sjálfboðaliðar spila fyrir dansi á harmonikku og deildirnar greiða húsaleiguna.
Öryggismál aldraðra. Rauði krossinn á Ísafirði býður upp á ókeypis námskeið sem heitir öryggismál aldraðra. Á námskeiðinu er m.a fjallað um bruna- og slysavarnir og öryggi innan sem utan heimilis, fyrstu viðbrögð, skyndihjálp og sálrænan stuðning, hjálpartæki og þjónustu sem er í boði fyrir fólk eldra en 65 ára á svæðinu. Kennslan byggir á verklegum æfingum, umræðum og fyrirlestrum. Útbúið var efni sem samanstendur af leiðbeiningum, fræðslumöppu, bæklingum, glærum og leikinni kvikmynd. Allar deildir munu nýta fræðsluefnið.
Sumarferð. Á hverju ári fara sjálfboðaliðar í 4-6 daga sumarferð með eldri borgurum. Þessar ferðir hafa verið farnar í yfir 20 ár. Fyrir marga eldri borgara skipta þessar ferðir miklu máli þar sem þetta er þeirra eina tækifæri til að ferðast um landið. Þátttakendur greiða fyrir kostnað við ferðir, mat og gistingu.

Fjölmenning
Deildirnar hafa um árabil styrkt og tekið þátt í menningarlega fjölbreyttum verkefnum á svæðinu. Rauði krossinn í Önundarfirði hefur verið með fjölmenningarlegar uppákomur s.s. matarkvöld, tungumálafræðslu, dans, o.fl. Gott samstarf er við Fjölmenningarsetur og Rætur, félag áhugafólks um menningarfjölbreytni. Tveir leiðbeinendur eru á svæðinu sem sjá um fræðslu á námskeiði sem kallast Viðhorf og virðing.

Sólstafir
Deildirnar eru bakhjarlar fyrir Sólstafi, systursamtök Stígamóta. Stuðningurinn er fólginn í að efla fræðslu fyrir sjálfboðaliða samtakanna. Samtökin voru stofnuð árið 2006 að frumkvæði Rauða kossins á Vestfjörðum og höfðu samtökin í fyrstu aðstöðu í húsnæði Rauða krossins en hafa nú aðstöðu hjá Ráðgjafar- og nuddsetrinu á Ísafirði. Deildirnar skiptast á að vera bakhjarlar fyrir verkefnið.

Samstarfsaðilar
Rauði krossinn á Vestfjörðum er í góðu samstarfi við marga aðila á svæðinu í ýmsum verkefnum. Samstarfsaðilarnir eru m.a. Fjölmenningarsetur, Vinnumálastofnun, Starfsendurhæfing Vestfjarða, sveitarfélögin á svæðinu, Háskólasetur Vestfjarða, slökkvilið Ísafjarðabæjar, Dvalarheimilið Hlíf, heimahjúkrun, heimaþjónustu, félag eldri borgara, félög innflytjenda (Pólverja og Taílendinga m.a.) og Rætur, félag áhugafólks um menningarfjölbreytni. Ekki má gleyma því góða samstarfi sem félagið á við alla skólana á svæðinu. Einnig er gott samstarf við fjölmiðla.