Einelti
Hvaða áHvaða áhrif hefur það að vera lagður í einelti?
Saga Rúnu

Einelti

Einelti.jpg

Einelti er endurtekin niðurlægjandi og/eða neikvæð framkoma sem leiðir til vanlíðunar hjá fórnarlambinu.

Það getur verið að einn eða fleiri haldi uppi aðförum að einstaklingi eða hóp með stríðni, illkvittnum uppnefnum, ógnandi og/eða árásargjarnri framkomu og útilokun frá félagsskap.

Ef þú vilt vita meira um einelti og hvernig það hefur áhrif á þá manneskju sem verður fyrir því smelltu hér.

Saga Rúnu

,,Við fáum öll okkar skammt af sorg í lífinu. Mér finnst ég bara hafa fengið mjög stóran skammt áður en ég varð átján ára.” segir Rúna. Rúna hefur kynnst einelti, reynt að fyrirfara sér og henni hefur líka verið nauðgað.

Það stóð yfir frá því að ég var í þriðja eða fjórða bekk þangað til í áttunda bekk þegar ég fór í heimavistarskóla. Þetta var ekki svo mikið líkamlegt einelti en ég fékk að vita að ég væri einskis virði. Að engum líkaði vel við mig. Ég var líka uppnefnd. Þetta var andlegt einelti og þó að sumir gengju harðar fram í því en aðrir tóku allir þátt í því vegna þess að enginn stoppaði það. Það skrýtna var að ég fékk algjöra andstyggð á þeim sem urðu ekki fyrir einelti. Ég var mjög einmana. Og ég fór smám saman að trúa því sem þau sögðu um mig. Að ég væri ljót og vitlaus og gæti ekkert. Í staðinn sökkti ég mér í lærdóminn, ég vildi vera klárust. Það varð ég líka. Þegar ég fór í heimavistarskóla slakaði ég aðeins á námskröfunum því að ég náði alveg sambandi við hina krakkana. En námið skipti mig samt miklu máli því það var fasti punkturinn í tilveru minni.

Ef þú vilt vilt lesa meira um það hvernig Rúnu gekk smelltu hér

 

Í 4. – 7. bekk verða 9-10% barna fyrir einelti.
Í 8. – 10. bekk verða 4-5% barna fyrir einelti.


Heimild:: www.olweus.is