Ef bara
Ástarsorg
Einelti
Ofbeldi
Skilnaður
Áfall
Sjúkdómur
Vímuefnaneysla
Dauðsfall
Fötlun
Samkynhneigð
Ungar mæður
Hjálp
Til kennara
Upplýsingar um efnið

Hér getur þú fengið hjálp

Ef_bara,_hjalp.jpg

Málsvarinn Börn, allir sem eru ekki orðnir 18 ára, hafa ákveðinn rétt og er t.d. talað um þann rétt í barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna (sjá heimasíðu Umboðsmanns barna www.barn.is. Ef þér finnst brotið á rétti þínum eða þekkir einhvern sem þetta gæti átt við, þá mun Umboðsmaður barna aðstoða þig við að koma því á framfæri við rétta aðila.

Aðsetur:
Laugavegur 13,
Reykjavík,
sími 552 8999.
Gjaldfrjálst símanúmer 800 5999.
Opið 9-15.

Hjálparsími Rauða krossins 1717
Hjálparsími Rauðakrossins er opinn allan sólarhringinn, alla daga ársins. Þú getur hringt í síma 1717, ef þig vantar upplýsingar, góð ráð, hvatningu eða stuðning. Við heitum þér fullum trúnaði og þjónustan er þér að kostnaðarlausu.

Regnbogabörn
Upplýsinga- og ráðgjafaþjónusta fyrir þá sem orðið hafa fyrir einelti. Sími: 545 0100 netfang: www.regnbogaborn.is

Barnahús
Barnahús veitir börnum, foreldrum og öðrum þeim sem afskipti hafa af málefnum barna og ungmenna upplýsingar og sérfræðiráðgjöf í kynferðisbrotamálum. Barnahús veitir barnaverndarnefndum leiðbeiningar og ráðgjöf um meðferð og úrlausn slíkra mála. Nánari upplýsingar um Barnahús er að finna á heimasíðu Barnaverndarstofu bvs.is.

Neyðarmóttaka vegna nauðgana
Þeir sem hafa orðið fyrir nauðgun geta leitað til neyðarmóttökunnar. Þar er boðið upp á læknisfræðilega rannsókn/skoðun og áfallahjálp.

Neyðarmóttakan er staðsett á Slysadeild Landspítala Háskólasjúkrahúss, Fossvogi.

Heilsugæslustöðvar
Heilsugæslustöðvar um allt land eru mikilvægur hlekkur í því öryggisneti sem allir landsmenn eiga að njóta. Auk læknisfræðilegrar þjónustu geta þær veitt mikilvægar upplýsingar og veitt tilvísanir þegar leita þarf sérfræðiaðstoðar utan stöðvarinnar.

Kirkjan – prestar
Sóknarprestar geta með viðtölum og ráðgjöf liðsinnt einstaklingum sem eiga við vanda að stríða. Þeir geta einnig vísað á aðra gerist þess þörf.

Stígamót
Ráðgjafar- og fræðslumiðstöð fyrir alla þá sem beittir hafa verið kynferðisofbeldi. Sjá nánar á vefsíðu Stígamóta www.stigamot.is

Samkynhneigð
Samtökin ’78: Þar starfa tveir félagsráðgjafar sem sérhæfa sig í stuðningi við samkynhneigt fólk án endurgjalds fyrir einkaviðtöl, auk sérmenntaðs fræðslufulltrúa og ungliðahóps sem hittist hvert sunnudagskvöld http://www.samtokin78.is/
Ungliðahópur Samtakanna ´78 www.samtokin78.is/unglidar/
Félag samkynhneigðra á Norðurlandi www.simnet.is/nn/
FSS-Félag sam- og tvíkynhneigðra stúdenta http://www.gay.hi.is/
Samtök foreldra og aðstandenda samkynhneigðra www.samtokinfas.is

Námsráðgjafar og annað starfsfólk skóla
Nemendur í grunn- og framhaldsskólum sem eiga við vanda að stríða geta leitað til námsráðgjafa, lækna eða hjúkrunarfræðinga skólans til að fá aðstoð eða ráð. Kennarar geta líka liðsinnt nemendum í vanda.