Mér leið eins og ég hefði gert eitthvað rangt.
Veröldin er öruggur staður. Það finnst okkur flestum að minnsta kosti, dags daglega. Við höfum heyrt um fólk sem hefur verið nauðgað og á það ráðist. Kannski þekkjum við líka einhvern sem hefur orðið fyrir þessu. En það er ekki eitthvað sem við erum alltaf að hugsa um. Ekki frekar en að við hugsum stöðugt um að við gætum orðið fyrir bíl eða fengið þakstein í höfuðið. Ef við gerðum ekki annað en að hugsa um slíkt yrðum við allt of öryggislaus og hrædd. Og lífið yrði óbærilegt.
Ef maður verður fyrir ofbeldi skiptir miklu máli hvort það var viljandi eða af gáleysi. Það getur verið aðeins auðveldara að sætta sig við það ef það var af gáleysi. En ef maður til dæmis verður fyrir árás eða nauðgun, sem er skipulagður, meðvitaður verknaður, getur verið næstum því ómögulegt að finna nokkra skýringu á því sem hefur gerst. Og það er erfitt að horfast í augu við jafntilgangslausan atburð.
Í fyrsta lagi getur verið erfitt að skilja hvers vegna annað fólk meiðir mann viljandi. Ef aðstæðurnar eru síðan þannig að einhver vafi leikur á um atburðarás, eins og maður sjálfur gæti hafa átt einhverja sök á árásinni, getur manni fundist eins og verið sé að ákæra mann fyrir eitthvað sem maður er saklaus af. Og þá getur maður farið að hugsa: ,,Gerði ég eitthvað rangt? Var ég of vitlaus? Getur það gerst aftur?”
|
Á árinu 2010 komu 19 einstaklingar á aldrinum 12-17 ára og 61 á aldrinum 18-25 ára á neyðarmóttöku vegna nauðgunar. |
Ef þú vilt vita meira um mismunandi tilfinningar og hegðan í sambandi við ofbeldi smelltu hér
Nauðgun
Að vera nauðgað eða vera beitt öðru kynferðislegu ofbeldi hefur mjög alvarleg áhrif á þolandann og nauðgun er álitin mjög alvarlegt afbrot. Oft greinir þolanda og geranda á um hvort um nauðgun hafi verið að ræða. Ósjaldan upplifir þolandinn aðdraganda og samræði sem nauðgun eða kynferðislega þvingun en gerandinn heldur því fram að samkomulag hafi ríkt um samræðið. Þannig stendur fullyrðing gegn fullyrðingu. Það er nauðsynlegt að taka það fram að um leið og manneskju er ógnað, eða hún er þvinguð kynferðislega er um nauðgun, misneytingu eða kynferðislega áreitni að ræða samkvæmt lögum. Sú saga hefur lengi lifað góðu lífi að ekki sé hægt að nauðga karlmönnum. Reynslan sýnir okkur þó að karlmönnum er líka nauðgað af öðrum karlmönnum, sem að sjálfsögðu er ekki síður hræðilegt en þegar konum er nauðgað. Nauðgun snýst ekki bara um að fullnægja kynferðislegri þörf heldur, ekki síður, að fá útrás fyrir drottnunarvilja og þá tilfinningu að hafa vald til að gera öðrum það sem manni sýnist.
Saga Jónasar um tilhæfulaust ofbeldi
Jónas er 22 ára námsmaður. Hann vinnur með skólanum sem dyravörður á diskóteki. Hann vonar að þannig geti hann tekið þátt í að berjast gegn ofbeldi. Hann segir frá því hvernig hann sjálfur var beittur ofbeldi og hvaða áhrif það hafði á hann.
Ef þú vilt lesa meira um Jónas smelltu hér
Þegar manneskju er ógnað, eða hún beitt þvingun kynferðislega er um nauðgun að ræða samkvæmt lögum.
Saga Rúnu af ofbeldi
Í partíi seint um kvöld er Rúnu nauðgað. Hún verður sem lömuð og getur hvorki öskrað né sparkað. Hún frýs. Eftir á finnst henni að þetta hafi verið sér að kenna af því að hún gat ekkert gert.
Ef þú vilt lesa meira um Rúnu smelltu hér
