Hvernig veit ég ef ég er hommi eða lesbía og hvernig á ég að segja frá því?
Margir unglinga velta kynhneigð sinni fyrir sér. Það er eðlilegt og hluti unglingsáranna. Ef þú heldur að þú sért samkynhneigð/ur eða að einhver náin/n þér sé það er hægt að afla upplýsinga hér.
Ef þú ert að velta þessu fyrir þér og vilt vita meira smelltu hér
Gummi er 15 ára og kom út úr skápnum þegar hann var í 8. bekk. Í dag líður honum vel en það var ekki auðvelt fyrir hann að segja foreldrum sínum að hann væri hommi.
„Þegar ég fattaði að ég væri hommi varð ég mjög hræddur við að segja þeim frá því. Ég var hræddur við hvað þau segðu og ég var hræddur um að þau litu öðruvísi á mig. Svo gat ég ekki meira og sagði þeim frá því um vorið í 8. bekk. Mamma vildi alls ekki trúa mér til að byrja með og ég þurfti að útskýra þetta fyrir þeim hrikalega lengi.“
Þú getur lesið sögu Gumma ef þú smellir hér
Nokkrar mikilvægar staðreyndir um samkynhneigð: (Úr bókinni: „Hvað er málið?)
Sumir halda að það að vera samkynhneigður þýði bara að vilja stunda kynlíf með einstaklingi af sama kyni. Það er misskilningur. Að vera samkynhneigður nær líka yfir allar tilfinningar sem fylgja því að vera hrifin/n af og finnast gott að vera nálægt annarri manneskju.
Samkynhneigð er ekki sjúkdómur. Það er ekki hægt að smitast af samkynhneigð. Það er ekki hægt að „lækna“ samkynhneigð. Samkynhneigð snýst ekki bara um kynlíf. Þú verður ekki samkynhneigð/ur út af einhverju sem gerðist þegar þú varst barn. Það er ekki þér eða neinum öðrum að kenna að þú sért samkynhneigð/ur. Þú getur ekki valið þér kynhneigð, hún er meðfædd. Samkynhneigðir verða líka hamingjusamir.
Davíð er 16 ára og hefur aldrei verið með strák en hefur samt vitað lengi að hann sé hommi.
„Ég á ekki kærasta og hef aldrei verið með strák. Það var ekki nauðsynlegt fyrir mig til að vita að ég væri hommi. Að vera hommi er fyrir mér að mig langar að vera í tilfinningalegu sambandi við strák en ekki stelpu. Kynlíf er engin nauðsyn og skiptir engu máli fyrir mig núna.“
Þú getur lesið sögu Davíðs ef þú smellir hér
Frá árinu 2011 hafa samkynhneigðir á Íslandi sama rétt í hjúskaparlögum eins og allir aðrir.
Í lok ársins 2004 höfðu 118 samkynhneigð pör staðfest samvist sína á Íslandi.
Heimild Hagstofa ÍslandsSigga er 18 ára. Hún var búin að vita í þrjú ár að hún væri lesbía þegar hún sagði fullorðnum frá því. Í dag vita allir að hún er lesbía. Hún er ekkert að fela það og segir að það sé ekkert mál fyrir sig að vera samkynhneigð í framhaldsskólanum. Hún hefði samt viljað að hún hefði komið út úr skápnum fyrr.
„Það var ótrúlega mikill léttir að tala við mömmu og pabba. Mér leið illa fyrsta kvöldið en svo var ég ótrúlega ánægð. Daginn eftir gaf mamma mér tvo risastóra regnbogafána og síðan hefur þetta bara verið mjög töff heima hjá mér. Sem sagt ekkert mál.“
Þú getur lesið sögu Siggu ef þú smellir hér
Hvert get ég leitað?
Í Samtökunum ´78 starfar ungliðahópur sem hittist vikulega og gerir skemmtilega hluti saman.
„Það breytti öllu fyrir mig að fara á ungliðafund í samtökunum og hitta aðra með sömu kynhneigð. Það var sérstaklega gaman að ganga inn í hóp þar sem maður veit að strákarnir horfa á mann en ekki stelpurnar.“ Davíð, 16 ára.
Ef þú vilt vita meira um hvert þú getur leitað og um reynslu Davíðs og Siggu af ungliðahópnum skaltu smella hér
