
,,Ef bara ég hefði vitað” er efni sem danski Rauði krossinn tók saman og fjallar um hvernig maður getur hjálpað sjálfum sér, og öðrum, þegar maður upplifir alvarlega atburði. Með alvarlegum atburðum er átt við t.d. skilnað, dauðsfall, umferðarslys, alvarlega ólæknandi sjúkdóma, þunglyndi, ástarsorg og einelti. Þetta efni er byggt upp á nokkrum sönnum frásögnum unglinga sem hafa upplifað erfiða atburði í lífinu. Allar frásagnirnar eiga það sameiginlegt að þær lýsa því hvernig tekist er á við vandann og sálræn einkenni, sem oft fylgja í kjölfarið.
Kaflinn um samkynhneigð var gefinn út seinna af Rauða krossi Íslands eða í desember 2005. Höfundur hans er Sigríður Birna Valsdóttir. Kaflinn um ungar mæður var gefinn út í júní 2007. Höfundur hans er Sóley Bender. Viðtölin í þessum tveimur köflum eru við íslensk ungmenni.
Til að geta hjálpað sjálfum sér eða annarri manneskju sem hefur upplifað alvarlega atburði er nauðsynlegt að gera sér grein fyrir því við hverju má búast.
Vandi og erfiðleikar annarra geta gengið mjög nærri þeim sem eru í næsta umhverfi og eru að reyna að hjálpa. Gleymi fólk sjálfu sér í hjálparstarfinu er auðvelt að verða það sem kallað er á fagmáli „útbrunninn”.
Sú vitneskja sem kemur fram í þessu efni, getur vonandi orðið til þess að hægt sé að líta öðruvísi á vandann þannig að sá sem þetta les geti aukið færni sína til þess að hjálpa sjálfum þér, eða veitt öðrum stuðning.
Þetta efni er ákjósanlegt sem kennsluefni í skólum fyrir nemendur efstu bekkja grunnskóla og í framhaldsskólum.
Kennsluleiðbeiningar fylgja. Eins er hægt að benda nemendum á þetta lesefni sér til fróðleiks.
Efnið er eingöngu gefið út á vef Rauða kross Íslands.
Höfundar dönsku kaflanna: Nana Wiedemann, Kirsten Borberg, Karin Sten Madsen, Michael Mossefin, Johanne Brix Jensen og Ulla Foldoy Steffens.
Þýtt og staðfært af Rauða krossi Íslands árið 2003
Þýðandi: Þórunn Hjartardóttir
Höfundur kaflans um samkynhneigð er Sigríður Birna Valsdóttir, útgefinn í desmeber 2005.
Höfundur kaflans um Ungar mæður er Sóley Bender, útgefinn í júní 2007.
Myndir eru frá danska Rauða krossinum, nema í kaflanum Ungar mæður. Þær eru sóttar á vef Stock.XCHNG, http://www.sxc.hu