Vímuefnaneysla
Saga Lilju
Vímuefnin ná tökum á manni

Vímuefnaneysla

Ef_bara,_vimuefnaneysla.jpg

Flestir eru háðir einhverju. Það getur verið sælgæti, matur, sjónvarp, ný föt, músík, eða kærasti/a. Það er þó misjafnt hversu háðir einstaklingarnir verða  og hversu mikil áhrif það hefur á líf þeirra.

Neysla áfengis og annarra vímuefna getur haft mjög alvarlegar afleiðingar í för með sér. Í langflestum tilfellum er neyslan í byrjun einhvers konar fikt sem sjaldan er nokkuð stórvandamál. Það er samt rétt að benda á að sá sem hefur fiktað er kominn yfir ákveðin mörk, kominn í hóp þeirra sem hafa prófað og búinn að opna fyrir að prófa aftur. Hættan á því að fiktið verði að meiri notkun er því alltaf fyrir hendi. Í byrjun vitum við ekki hvernig við komum til með að bregðast andlega og líkamlega við efnunum sem við erum að fikta með. Þannig er alltaf sú hætta fyrir hendi að fiktið geti orðið að meiri neyslu allt eftir því hve mikil fíkn myndast.

Ef þú vilt vita meira um misnotkun áfengis- og vímuefna, hvenær maður þarf að fara að hafa áhyggjur og hvernig efnin virka, smelltu hér

 

Rannsókn á neyslu unglinga í 10. bekk leiddu í ljós að árið 2010 höfðu: 

26% stráka og 29% stelpna hafa orðið ölvuð um ævina
6% stráka og 3% stelpna  hafa prófað hass um ævina


Heimild: Rannsóknir og greining.     

 

Ég hef alltaf helst viljað vera töffari

Lilja byrjaði að drekka áfengi  þegar hún var í 8. bekk af því að hún vildi vera töff. En drykkjan leiddi til neyslu eiturlyfja og vændis. Í dag er hún hætt í allri neyslu og á yndislegan kærasta.

Ef þú vilt lesa meira um sögu Lilju smelltu hér