Nú hálfu ári eftir hinn mannskæða jarðskjálfta í Pakistan leggur Alþjóða Rauði krossinn áherslu á mikilvægi þess að gera þeim sem lifðu skjálftann af kleift að ákveða sjálfir hvernig endurreist samfélag þeirra mun líta út.
?Það skiptir öllu máli að fólkið á staðnum leiði uppbyggingarstarfið,? segir Azmat Ulla hjá Alþjóða Rauða krossinum. ?Það fólk veit best um sínar þarfir og það er stór hluti af uppbyggingarstarfinu að hjálpa þessu fólki að taka við stjórnartaumunum. Þegar fólk er virkjað á þennan hátt er einnig líklegra að ýmsar breytingar til lengri tíma komist í gagnið, eins og í heilsugæslu, menntun og almennu lífsviðurværi.?
Nú, þegar veturinn er á enda og fólk er farið að snúa aftur þangað sem það bjó eru áherslurnar í uppbyggingarstarfinu meiri á að menn nái sér á strik að nýju en á almennu hjálpastarfi. Alþjóða Rauði krossinn hefur hækkað þá fjárhæð sem stefnt er að því að safna úr 8,5 milljörðum króna í 12,6 milljarða til að hjálpa við enduruppbyggingu. Nú er búið að safna 83% af þeim 8,5 milljörðum sem upphaflega átti að safna.
Aukafjárhæðin verður notuð til að styðja Rauða hálfmánann í Pakistan við að aðstoða 1,5 milljónir manna við að byggja upp líf sitt og samfélag næstu þrjú árin. Meðal annars á að bæta heilbrigðisþjónustuna, byggja upp að nýju skóla, vatnsveitu og hreinlætisaðstöðu og gera Rauða hálfmánann í Pakistan betur kleift að sinna almennu hjálparstarfi og bregðast við hugsanlegum hamförum í framtíðinni eins og aurskriðum og flóðum vegna vorrigninga.
?Þetta snýst ekki aðeins um að fólk geti snúið aftur til fyrra lífs,? segir Khalid Kibriya framkvæmdastjóri Rauða hálfmánans Pakistan. ?Staðreyndin er sú að þetta svæði er mjög viðkvæmt fyrir náttúruhamförum þannig að uppbyggingin gefur okkur einnig tækifæri til að styrkja samfélög og búa þau betur undir næstu hamfarir.?
Stjórnvöld í Pakistan hafa eftirlit með uppbyggingu á húsnæði og er með áætlun sem gerir fólki kleift að byggja sjálft sín eigin heimili með fjárstuðningi. Sumir þjóðfélagshópar sem illa er statt fyrir munu ekki geta nýtt sér þetta þannig að Alþjóða Rauði krossinn er tilbúinn til að veita um 10 þúsund fjölskyldum húsaskjól ef á þarf að halda.
Jarðskjálftinn, sem skók norðurhluta Pakistan 8. október 2005 varð yfir 73 þúsund manns að bana auk þess sem 3,5 milljónir manna sem bjuggu á fjallasvæði misstu heimili sín. Þessar gríðarlegu hamfarir urðu til þess að mannúðarsamtök urðu að veita þúsundum manna hjálp strax í afskekktum svæðum áður en vetur gengi í garð. Rauði hálfmánann í Pakistan veitti yfir 740 þúsund manns í norðvesturhéraði landsins aðstoð í kjölfar þessara hörmunga. 18 þúsund tonnum af hjálpargögnum var dreift, m.a. vetrartjöldum, ábreiðum og teppum. Þá hefur Alþjóðaráðið unnið með Rauða kross Pakistan í Kasmír-héraði og aðstoða 220 þúsund manns til viðbótar.
Hægt er að styrkja hjálparstarfið með því að hringja í síma 907 2020 og dregst þá 1000 kr. af næsta símareikningi eða með því að fara á vefsíðuna með því að smella hér og láta taka af kreditkorti.
| Deila þessari frétt: |
|
|