![]() |
| Það var ýmislegt hægt að skoða á 112 deginum. |
Viðbragðsaðilar í björgun og almannavörnum efndu til fjölbreyttrar dagskrár um allt land á 112 daginn, sunnudaginn 11. febrúar. Að þessu sinni var dagurinn helgaður margvíslegum störfum sjálfboðaliða að forvörnum, leit og björgun, almannavörnum og neyðaraðstoð. Hér á Akureyri óku viðbragðsaðilar hópakstur um bæinn en síðan var opið hús í slökkvistöðinni frá kl. 13 – 16. Þar mátti skoða tækjakost og kynnast starfsemi þessara aðila.
Aðaláhersla Rauða krossins þennan dag var á Neyðarvarnir og Skyndihjálp og kynntu sjálfboðaliðar deildarinnar gestum og gangandi þetta starf. Boðið var upp á tilsögn í skyndihjálp og endurlífgun, mælingu á blóðþrýsingi, blóðsykri ofl. Einnig gátu gestir tekið þátt í léttri getaun og svarað nokkrum spurningum um starfsemi Rauða krossins. Úr réttum lausnum voru dregnir út þrír vinningshafar sem fengu sjúkratösku að launum.
| Deila þessari frétt: |
|
|
