![]() |
| Þátttakendur leysa flókin verkefni með Jóni Brynjari verkefnisstjóra neyðarvarna hjá Rauða krossinum. |
Námskeið fyrir verðandi fjöldahjálparstjóra var haldið á Akureyri síðustu helgi. Sóttu það um tuttugu manns frá Siglufirði, Ólafsfirði, Dalvík, Akureyri og af höfuðborgarsvæðinu.
Þátttakendur voru ýmist að endurnýja réttindi sín sem fjöldahjálparstjórar eða að sækja í fyrsta sinn námskeið í fjöldahjálp og bjóðum við þá aðila sérstaklega velkomna í hópinn.
Námskeiðið samanstóð af fyrirlestrum, verklegum æfingum og umræðum. Æfðu þátttakendur sig í viðbrögðum við hópslysi og að opnun fjöldahjálparstöðvar í kjölfar hamfara. Í lok námskeiðs fóru fram fjörlegar umræður um lausnir þátttakenda í verklegu æfingunum, þar sem fram komu hugvitsamlegar lausnir og er greinilegt að þessi hópur verður vandanum vaxinn ef til alvörunnar kemur.
Leiðbeinendur voru þau Jón Brynjar Birgisson, Guðný H. Björnsdóttir og Guðný Bergvinsdóttir.
![]() |
|
|
![]() |
| Deila þessari frétt: |
|
|



