Fatapokarnir farnir að skila sér til baka 18.09.2009
Pokarnir sem dreift var til að vekja athygli á fatasöfnun Rauða krossins eru nú farnir að skila sér til baka fullir af fatnaði

Rauði krossinn lét á dögunum dreifa sérmerktum fatapokum inn á heimili landsmanna.
Tilgangurinn með dreifingunni var að minna fólk á að mikil verðmæti liggja í allri vefnaðarvöru – hvort sem er fatnaði, skóm, handklæðum, dúkum, gluggatjöldum eða sængurfötum og með því að gefa fatnað er fólk að leggja Rauða krossinum lið og um leið styðja við neyðaraðstoð bæði hér heima og erlendis. 
Nú eru pokarnir farnir að skila sér til baka fullir af fötum þannig að vonandi hefur framtakið skilað tilætluðum árangri.

Rétt er að mynna á að markaður er opinn alla virka daga á deildinni kl. 9:00 - 16:00
 

Til baka...
Deila þessari frétt: Senda frétt Facebook