Í félagsstarfi aldraðra á Reyðarfirði er hópur kvenna í prjónahópi. Þær prjóna reglulega saman og senda framleiðsluna í Rauðakrossbúðirnar. Reyðarfjarðardeild Rauða krossins hefur á móti útvegað prjónahópnum garn.
Víða á landinu eru hópar innan félagsstarfs eldri borgara sem gefa Rauða krossinum alls kyns hannyrðir. Afurðirnar fara annað hvort til þróunaraðstoðar eða eru seldar í fatabúðunum þar sem hagnaðurinn er notaður til hjálparstarfs.
Á myndinni eru þrjár konur úr prjónahópum með hluta af fjölbreyttum og fallegum hlutum sem þær sköpuðu.