Ísland er fjarri því að vera einungis gegnumstreymisland fyrir fórnarlömb mansals heldur má gera ráð fyrir að tugir einstaklinga sem dvelja til lengri eða skemmri tíma hér á landi falli undir skilgreiningar mansals. Þetta má lesa úr niðurstöðum skýrslu um sem Rauði krossinn lét vinna fyrir sig og kynnt verður á morgun, en þetta er fyrsta rannsókn sem gerð er um eðli og umfang mansals hérlendis. Rannsóknarstofa Háskóla Íslands í kvenna- og kynjafræðum (RIKK) vann rannsóknina fyrir Rauða krossinn.
Um grunnrannsókn á þessu viðfangsefni er að ræða og er í framhaldi af henni gert ráð fyrir að Rauði kross Íslands vinni að úrræðum fyrir fórnarlömb mansals svo unnt verði að veita þeim viðeigandi þjónustu, vernd og stuðning.
Fólksflutningar milli landa, bæði löglegir og ólöglegir, eru eitt aðalviðfangsefni Rauða kross félaga Í Evrópu. Rauði kross Íslands hefur átt þátt í að móta samevrópska stefnu um hvernig bregðast megi við skuggahliðum síaukinna fólksflutninga milli landa og aðstoða þá hópa sem lenda á jaðri samfélagsins. Í þessu samstarfi hefur Rauði krossinn fundið áþreifanlega fyrir því hversu lítið er vitað um mansal hér á landi.
Í nóvember 2007, á alþjóðaráðstefnu Rauða krossins sem haldin er fjórða hvert ár með fulltrúum Rauða kross félaga og ríkisstjórna þeirra, lagði Rauði kross Íslands fram áheit um að félagið myndi rannsaka og meta aðstæður hugsanlegra fórnarlamba mansals á Íslandi. Leitað var til Rannsóknastofu í kvenna- og kynjafræðum við Háskóla Íslands (RIKK) að vinna rannsóknina.
Reynsla annarra þjóða sýnir að því betur sem málefnum fórnarlamba mansals er gefin gaumur og þekking á þeim eykst því fleiri mál koma upp á yfirborðið. Þegar lönd hafa fullgilt alþjóðlega samninga sem vinna að því að uppræta mansal leita því fleiri fórnarlömb sér aðstoðar.
Ísland er ekki svo frábrugðið hinum Norðurlöndunum, en þó hefur aldrei verið dæmt í mansalsmáli hér á landi. Í skýrslunni kemur fram að sú staðreynd að hérlendis hafi ekki verið komið upp vernd og öryggi fyrir fórnarlömb mansals sé ein helsta ástæða fyrir því hversu fá mál koma upp á yfirborðið hér á landi.
Líka á Íslandi – rannsókn á eðli og umfangi mansals verður kynnt miðvikudaginn 2. september, kl. 12:00-13:30 á Háskólatorgi HÍ, stofu 102.
| Deila þessari frétt: |
|
|