Sendifulltrúanámskeið Rauða krossins 16.09.2012

Viltu vinna við hjálparstörf erlendis?

Rauði kross Íslands auglýsir eftir umsóknum á sendifulltrúanámskeið félagsins sem haldið verður vikuna 16. – 21. septembar 2012. Námskeiðið er tvíþætt og fer fyrri hluti þess fram á netinu en seinni hlutinn verður haldinn í Munaðarnesi. Alls verða 25 umsækjendur valdir inn á námskeiðið, bæði íslenskir og erlendir. Þátttaka á sendifulltrúanámskeiði er forsenda þess að fá starf á vegum Rauða kross Íslands á alþjóðavettvangi.

Þátttökuskilyrði eru m.a. fagmenntun og minnst þriggja til fimm ára starfsreynsla í viðkomandi fagi eftir nám. Mjög góð enskukunnátta er skilyrði. Færni í frönsku, arabísku, rússnesku eða spænsku er mikill kostur.

Rauði kross Íslands leitar sérstaklega að ljósmæðrum, kvensjúkdómalæknum og svæfingalæknum sem gætu starfað með Alþjóða Rauða krossinum í kjölfar náttúruhamfara og/eða á átakasvæðum en einnig frönskumælandi fólki með háskólamenntun á sviði lögfræði eða mannréttinda til að starfa að vernd almennings á átakasvæðum. Reynsla af skýrsluskrifum og verkefna- og fjármálastjórnun er mikill kostur fyrir öll ofangreind störf sem og starfsreynsla á alþjóðavettvangi.

Námskeiðsgjald er 27.000 krónur. Kennslugögn, húsnæði og fæði er innifalið.

Umsóknir berist með tölvupósti til Gunnhildar Sveinsdóttur verkefnisstjóra hjá Rauða krossinum (gunnhildur@redcross.is)

Umsóknareyðublað má finna á heimasíðunni auk nánari upplýsinga um námskeiðið og þátttökuskilyrði. Öllum umsóknum verður svarað.

Til baka...
Deila þessari frétt: Senda frétt Facebook