 |
| Úlfar Hauksson formaður Rauða kross Íslands færði afmælisbarninu kveðju Rauða krossins |
Þann 8. desember árið 2000 opnaði Ingibjörg Pálmadóttir, þá verandi heilbrigðisráðherra athvarfið Laut á Akureyri. Nú fimm árum síðar hélt Lautin upp á fimm ára starfsafmæli sitt og bauð að því tilefni til afmælisfagnaðar á Hótel KEA. Eins og gjarnan er gert á slíkum tímamótum voru rifjaðar upp minningar frá þessum fyrstu árum og afmælisbarninu óskað áframhaldandi velfarnaðar. Samhliða þessu var boðið upp á handverkssýningu í Laut, þar sem til sýnis voru ýmsir munir gerðir af gestum Lautarinnar. Laut er eitt af fjórum athvörfum fyrir fólk með geðraskanir, sem rekin eru í nafni Rauða krossins krossinn. Hin eru Vin í Reykjavík, Dvöl í Kópavogi og Lækur í Hafnafirði.