Systkynin gáfu sparifé sumarsins 09.12.2005

Systkynin Tryggvi og Stefanía með sparigrísinn Sólmund

Á heimili Tryggva og Stefaníu Johnsen býr heimilsvinurinn Sólmundur. Sólmundur þessi er hvorki hundur né köttur heldur feitur og pattaralegur sparigrís sem þau systkynin mata reglulega með sprifé.  Systkynin hafa undanfarin ár farið með jólapakka í Kringluna í Reykjavík og stungið undir jólatré sem þar er staðsett. En þar sem þau eru nú flutt til Akureyrar ákváðu þau að  færa Rauða krossinum spariféið sem Sólmundur hafði geymt fyrir þau. Úr maga heimilisvinarinns komu heilar 20.365 krónur og þakkar Rauði krossinn þeim systkynum kærlega fyrir framlagið og þeirra hlýja hug.
Til baka...
Deila þessari frétt: Senda frétt Facebook