 |
| Hér má sjá frá vinstri vinkonurnar Eygló Ruth og Lilju Sól sem létu allt fíneríið sem þær fundu í tiltekt hjá ömmu renna í hjálparstarf. |
Vinkonurnar Eygló Ruth Rohleder og Lilja Sól Andersen tóku sig til um daginn og hreinsuðu aðeins til hjá ömmu Lilju sem lumaði á ýmsu góssi sem koma mátti í verð.
Eftir góða tiltekt héldu vinkonurnar niður að Krónu við Hvaleyrarbraut þar sem bestu hlutirnir voru settir á tombólu. Markmiðið var að safna sem mestum pening til að styrkja gott málefni og færðu stelpurnar Rauða krossinum 3.490 kr. eftir vel heppnaðan dag við Krónuna. Að þeirra sögn rann dótið hennar ömmu út eins og heitar lummur þó svo að nokkrir hefðu ákveðið að gefa frekar pening en að taka þátt í tombólunni.
Á hverju ári safnar fjöldi barna fé til styrktar jafnöldrum sínum í fjarlægum löndum og leggja þannig sitt lóða á vogaskálarnar í hjálparstarfi Rauða krossins. Í framlagi barnanna sannast vel að margt smátt gerir eitt stórt því að á liðnu ári söfnuðu þau um 1 milljón króna.