Rauði krossinn aðstoðar við uppbyggingu neyðarvarna í Armeníu og Georgíu 04.07.2012
Hluti af neyðarvarnaverkefninu er þjálfun í rústabjörgun í kjölfar jarðskjálfta.

Reynsla og sérþekking Rauða krossins á Íslandi af uppbyggingu neyðarvarna og viðbrögðum við náttúruhamförum er ein af burðarstoðunum í stóru neyðarvarnaverkefni í Armeníu og Georgíu sem Evrópusambandið styrkir um 770,000 evra eða sem nemur um 120 milljónum króna.

Náttúruhamfarir svo sem öflugir jarðskjálftar, aurskriður, snjóflóð og flóð ríða reglulega yfir í löndunum tveimur. Almannavarnir þessara landa hafa fram að þessu verið fremur bágbornar og hafa stjórnvöld og íbúar átt erfitt með að takast á við afleiðingar náttúruhamfara.

Rauði krossinn á Íslandi leggur til þrjá íslenska sérfræðinga sem munu næsta árið aðstoða Rauða krossinn í Armeníu og Georgíu við uppbyggingu neyðarvarna í löndunum tveimur og byggja þar á reynslu Íslendinga. Auk þess styrkir Rauði krossinn á Íslandi verkefnið um sjö milljónir króna.

Jóhann Thoroddsen, sálfræðingur, er nú staddur í Armeníu, þar sem hann þjálfar 22 leiðbeinendur í sálrænum stuðningi eftir hamfarir. Leiðbeinendurnir munu í kjölfarið þjálfa fjölda sjálfboðaliða Rauða krossins í löndunum tveimur í sálrænum stuðningi.

Jón Brynjar Birgisson, verkefnastjóri neyðarvarna og neyðaraðstoðar, mun síðar á árinu aðstoða við uppbyggingu almannavarnakerfis og skipulags neyðarvarna og áfallahjálpar í löndunum tveimur í samvinnu við stjórnvöld og félagasamtök.

Þá mun Þórir Guðmundsson, sviðsstjóri hjálparstarfssviðs Rauða krossins, halda námskeið fyrir Rauða krossinn í Armeníu og Georgíu um samskiptamál í neyðarástandi og hamförum, hvernig haga á samskiptum við fjölmiðla og koma nauðsynlegum upplýsingum til almennings.

Verkefnið felst meðal annars í því að efla viðbúnað og bæta þekkingu á neyðarvörnum og neyðaraðstoð. Markmiðið er að lágmarka tjón og slys af völdum náttúruhamfara og kenna rétt viðbrögð við þeim.

Neyðarteymi eru þjálfuð í þeim héruðum sem verst hafa orðið úti vegna náttúruhamfara á liðnum árum. Teymin vinna að fyrirbyggjandi aðgerðum s.s. gróðursetningu til að koma í veg fyrir aurskriður og verða til staðar til að veita fyrstu hjálp og neyðaraðstoð heima í héraði. Sjálfboðaliðar Rauða krossins verða þjálfaðir í skyndihjálp og sálrænum stuðningi. Þá eru neyðarvarnaráætlanir gerðar fyrir heimili og skóla og æfðar þar.

Verkefnið verður í gangi næstu 17 mánuði og mun ná beint til um 125.000 manns. Um þrjár milljónir manna munu njóta góðs af því óbeint í formi öflugra almannavarnakerfis og betri neyðarviðbúnaðar í löndunum tveimur.

Starfið nú byggir á samskonar en þó minna verkefni sem hófst í löndunum árið 2010. Árangurinn af því var metinn svo mikilvægur að nú er verið að fjölga þeim svæðum þar sem fólk fær þjálfun og styrkja neyðarvarnakerfi landanna enn frekar. Rauði krossinn á Íslandi, í Danmörku og Austurríki koma að verkefninu ásamt Alþjóðasambandi Rauða krossins og fleiri hjálparsamtökum.

Rústabjörgun og skyndihjálp æfð í Armeníu. 
Sjálfboðaliðar í Georgíu æfa hnúta fyrir björgun úr byggingum. 
Uppsetning neyðartjalda fyrir heimilislausa í kjölfara hamfara er hluti af þjálfun og viðbúnaði
Georgískir sjálfboðaliðar undirbúa bátabjörgunaræfingu í samstarfi við slökkviliðið á staðnum.
Georgískir sjálfboðaliðar og Eva sendifulltrúi gróðursetja tré í Imereti fjallahéraðinu, til að hefta aurskriður og snjóflóð.
Jóhann Thorodssen, sálfræðingur Rauða krossins, ásamt forsvarsfólki Rauða krossins í Georgíu og Armeníu og fleiri samstarfsaðilum verkefnisins.

 

Til baka...
Deila þessari frétt: Senda frétt Facebook