Hafnarfjarðardeild
Stjórn og starfsfólk
Fataverkefni og Rauða kross búðir
Föt sem framlag
Heimsóknaþjónusta
Verkefni með hælisleitendum
Lækur, athvarf fyrir fólk með geðraskanir
Myndir
Neyðarvarnir
Ungmennastarf
Samstarf við Flensborg
Fréttir
Starfið - ársskýrslur
Deiglan
gtg_Flensborg.jpg
Hér má sjá nokkra hressa Flensborgara sem gengu til góðs árið 2006.

Flensborgarskóli og Hafnarfjarðardeild Rauða krossins eru í samstarfi með áfanga í sjálfboðnustarfi -  SJÁ102

Hvað er SJÁ 102
Nemendur sækja námskeið og vinna sjálfboðið starf yfir önnina í samráði við kennara Flensborgarskóla og Hafnarfjarðardeild Rauða krossins.Meðal verkefna í boði eru: Heimsóknarvinir, störf í Læk - athvarf fyrir fólk með geðraskanir, ungmennastarf, starf í Rauða krossbúðinni. Nemendur fá fræðslu um hugsjónir og störf Rauða kross hreyfingarinnar og sækja annað námskeið fyrir sjálfboðaliða. Einnig munu nemendur vinna verkefni í kynningar og fjáröflun. Nemendur skrifa dagbók um vinnu sína. Áfanginn byggir á hugmyndum um þátttökunám (service learning) og er próflaus.  
 
Tengiliðir
Hafnarfjarðard. RkÍ: Kolbrún Guðmundsdóttir, kolbrung@redcross.is s: 565-1222,
Flensborgarskóli: Hrafnkell Tumi Kolbeinsson, hrafnkell@flensborg.is, s. 692-0092
 
Mikilvægi sjálfboðins starfs
Starf Rauða krossins er borið upp af sjálfboðaliðum og stjórnast aldrei af hagnaðarvon. Sjálfboðaliðar leggja af mörkum ólaunaða vinnu og hugvit í þágu meðbræðra sinna og systra.
 
Rauði kross Íslands ber ábyrgð á þjálfun og fræðslu til sjálfboðaliða svo að mæta megi þörfum samfélagsins fyrir mannúðarstörf. Rauði krossin er öllum opinn til sjálfboðinna starfa. Lagt er til að sjálfboðaliðar kynni sér vel hvað er í boði innan hreyfingarinnar og finni sér verkefni sem þeir hafa áhuga á og möguleiki er á að þeir sjálfir hljóti góða reynslu af.
 
Allir sjálfboðaliðar Rauða krossins skrifa undir sjálfboðaliðasamning sem felur í sér að þeir fallast á að vinna undir sjö grundvallarmarkmiðum hreyfingarinnar en jafnframt skuldbindur Rauði kross Íslands sig til að sjúkratryggja sjálfboðaliða á meðan þeir sinna sjálfboðaliðastörfum.