Sjálfboðaliðar Hafnarfjarðardeildar á öllum aldri koma saman og hanna, prjóna og sauma fatnað. Búnar eru til peysur, húfur, buxur, teppi, sokkar og vettlingar. Með varningnum eru búnir til ungbarnapakkar fyrri börn 0-12 mánaða . Þessir ungbarnapakkar eru sendir til þróunar- og neyðaraðstoðar erlendis t.d til Malaví og Gambíu.
Prjónahópurinn kemur saman einu sinni í viku á þriðjudögum frá klukkan 13:00-15:00. Fólki stendur einnig til boða að prjóna og sauma heimavið.

