Hvað gera félagar URKÍ-H?
URKÍ-H félagar í 5-7.bekk(10-12 ára) hittast á fimmtudögum kl. 16:00-17:30 og 8.-10.bekkur (13-15 ára) einnig fimmtudögum kl. 19:30-21:00.Einnig er starfandi hópur 16+ sem hittist reglulega en hefur ekki eiginlegan fundartíma.
Hóparnir hittast í Sjálfboðamiðstöðinni að Strandgötu 24 og gera ýmislegt skemmtilegt s.s. halda spilakvöld, videokvöld, fræðast um mannúðarmál og framandi menningarheima, læra lítilega skyndihjálp , safna fyrir hjálparstarf og margt fleira.
Helstu verkefni og áherslur í starfi URKÍ-H
Byggjum betra samfélag: vitundarvakning geng fordómum og mismunun í samfélaginu. Fatasöfnun: kynnast þessu verkefni Rauða krossins. Ferðalög: förum a.m.k. í eitt ferðalag á ári auk þess sem ýmist er boðið uppá alþjóðlegar sumarbúðir eða landsmót á sumrin. Fjáraflanir: leggjum okkar af mörkum til að safna pening til verkefna Rauða krossins jafnt innanlands sem utan. Hlutverkaleikurinn "Á Flótta": þar sem þáttakendur fá að kynnast veruleika flóttamanna.
Þú getur skráð þig í URKÍ-H með því að hringja í síma 565-1222 eða senda póst á hafnarfjordur@redcross.is sem og að mæta í Rauðakrosshúsið, Strandgötu 24 (gengið inn Fjarðargötu megin) á þeim tímum sem hóparnir hittast