Flóðbylgjan fimm árum síðar
Fimm árum síðar
Fréttir
Sendifulltrúar í Indónesíu
Sendifulltrúar á Sri Lanka
Raddir sendifulltrúa - myndband
Sálrænn stuðningur Srí Lanka
Lahewa
Lhokseumawe
Stuðningur við eftirlifendur
Verðlaunamyndir Þorkels

Lahewa

Börnin í þorpinu Siheneasi í Lahewa héraði leika sér að vatni úr brunni sem Alþjóða Rauði krossinn og Rauði krossinn í Indónesíu settu upp.
Búnaður til að safna regnvatni í Esiwa þorpi í Namohalo héraði.

Vatnsöflun og hreinlæti á Nias eyju
Rauði kross Íslands var einn af helstu styrktaraðilum Alþjóða Rauða krossins (IFRC) í aðgerðum hans á Nias eyju við strendur Súmötru í Indónesíu. Fyrst og fremst er þar um að ræða verkefni sem nefnist Lahewa 1. Rúmlega 12.000 manns í átta þorpum nutu góðs af Lahewa 1 verkefninu en alls búa um 600.000 manns á Nias eyju.

Verkefnið fólst meðal annars í því að vatnsból og vatnsgeymar voru tekin í notkun fyrir þessi þorp og lagðir voru meira en 10 kílómetrar af vatnsleiðslum. Settur var upp fjöldi krana fyrir almenning, búnaður til að safna regnvatni. Einnig voru grafnir brunnar og sett upp þvottaaðstaða. Byggðir voru 82 almenningskamrar og 342 fjölskyldukamrar. Alls þjónar þessi aðstaða um 12.000 manns og skiptir sköpum fyrir hreinlæti í þessum átta þorpum.

Flóðbylgjan olli gríðarlegu tjóni á Nias eyju
140 manns létust og mörg hundruð misstu heimili þegar jarðskjálftinn átti sér stað 26. desember 2004 skammt undan ströndum eyjarinnar og myndaði allt að tíu metra flóðöldur.

Þremur mánuðum seinna, 28. mars 2005 varð annar jarðskjálti sem talinn er hafa verið sá sterkasti í um fjörutíu ár. Hann varð 850 manns á Nias eyju að bana, 6.000 manns slösuðust og hundruð bygginga eyðilögðust. Um 80.000 manns misstu heimili sín og fengu skjól í bráðabirgðaskýlum, tjaldbúðum eða hjá öðrum fjölskyldum. Jafnframt flýðu þúsundir manna af hamfarasvæðunum.

Smellið hér til að sjá skýrslu Alþjóða Rauða krossins frá 3. september 2009 um ráðstöfun framlags Rauða kross Íslands á Nias eyju.