Hvað gerum við
Skyndihjálp
Neyðarvarnir
Neyðaraðstoð innanlands
Alþjóðleg neyðaraðstoð
Sálrænn stuðningur
Hjálparsíminn 1717
Konukot
Skaðaminnkun
Heimsóknavinir
Geðheilsa
Hælisleitendur og flóttamenn
Fataverkefni
Barna- og ungmennastarf
Sjúkrabílar
Alþjóðaverkefni
Leitarþjónusta
Fjölskyldumiðstöð
Sölubúðir sjúkrahúsanna
Innflytjendur
Ungt fólk til athafna
Gott hollt og ódýrt
Hvað er í boði

Hvað er í boði?

hvaderibodi

Í febrúar 2009 hófu sjálfboðaliðar Rauða krossins í samstarfi við SÍBS og Háskóla Íslands vinnu við að kortleggja upplýsingar um námskeið og frístundir sem eru ókeypis eða kosta lítið og þau úrræði sem eru í boði fyrir þá sem misst hafa vinnuna. Markmiðið var að safna upplýsingum í gagnabanka á einn stað til að auðvelda fólki að nýta þau tækifæri til afþreyingar, fræðslu og þjónustu sem standa landsmönnum til boða.

Afraksturinn var bæklingurinn „Hvað er í boði?“ sem fyrst var gefin út 31. mars 2009. Sjálfboðaliðar og starfsmenn Rauða krossins hafa séð um að viðhalda upplýsingum og uppfæra þær eftir fremsta megni. Vinnu við uppfærslu þessa misseris er nýlokið og má nálgast nýjasta „Hvað er í boði? “ bæklinginn hér.

„Hvað er í boði? “ er á prentvænu formi og eru stofnanir og félagasamtök hvött til að prenta hann út og hafa aðgengilegan sem flestum.