Hvað gerum við
Skyndihjálp
Neyðarvarnir
Neyðaraðstoð innanlands
Alþjóðleg neyðaraðstoð
Sálrænn stuðningur
Hjálparsíminn 1717
Konukot
Skaðaminnkun
Heimsóknavinir
Geðheilsa
Hælisleitendur og flóttamenn
Fataverkefni
Barna- og ungmennastarf
Sjúkrabílar
Alþjóðaverkefni
Leitarþjónusta
Fjölskyldumiðstöð
Sölubúðir sjúkrahúsanna
Innflytjendur
Ungt fólk til athafna
Gott hollt og ódýrt
Hvað er í boði

Ungt fólk til athafna

Tilgangur verkefnisins er að stuðla að virkni og starfshæfni þátttakenda og sporna gegn erfiðum félagslegum og heilsufarslegum afleiðingum atvinnuleysis

Ég vil styrkja ufta_rvk_IMG_4847.jpg

Verkefnið er samstarfsverkefni Rauða krossins og Vinnumálastofnunar. Verkefnið var sett á laggirnar í febrúar 2010 með það að markmiði að veita ungum atvinnuleitendum, sem tryggðir eru innan atvinnuleysistryggingakerfisins, tækifæri til þátttöku í sjálfboðaliðastörfum innan Rauða krossins á meðan á atvinnuleitinni stendur. Tilgangur verkefnisins er að stuðla að virkni og starfshæfni þátttakenda og sporna gegn erfiðum félagslegum og heilsufarslegum afleiðingum, sem oft fylgja langvarandi atvinnuleysi.

Viltu taka þátt?
Ertu á aldrinum 16 til 29 ára og í atvinnuleit ?
Eða viltu vera sjálfboðaliði í Takti, með því að bjóða uppá fræðslu, tengda markmiðum námskeiðsins (atvinnuleit, markmiðasetningu, sjálfboðavinna o.fl.)?

Verkefnið er keyrt á 2 stöðum, víðsvegar um landið:
Skagastaðir , Tækifæri – Akranes (sjá hér)
Akureyrardeild sjá vefsíðu

Allar nánari upplýsingar veita verkefnastjórar. Hafðu samband í síma 570-4000 eða sendu tölvupóst á netfangið central@redcross.is