Fataverkefni
Fatasöfnun
Fataúthlutun
Verslanir
Föt sem framlag

Fataverkefni

Rauði krossinn tekur við notuðum fatnaði og annarri textílvöru sem nýtist til hjálparstarfs. Rauðakrossbúðirnar gegna mikilvægu hlutverki í fjáröflun félagsins. Úthlutað er fatnaði til 2000 einstaklinga árlega

Styrkja starfið fataverkefni.jpg

Fatasöfnun Rauða krossins er orðin eitt mikilvægasta fjáröflunarverkefnið fyrir Hjálparsjóð Rauða krossins. Afrakstur ársins 2011 var 84 milljónir króna sem greiddar voru í Hjálparsjóð, sem einkum er notaður til alþjóðlegs hjálparstarfs, auk þess sem hluti afraksturs fer í rekstur Hjálparsíma Rauða krossins 1717.

Rauðakrossbúðirnar gegna mikilvægu hlutverki í fjáröflun félagsins. Rúmlega tíu ár eru liðin frá því fyrsta Rauðakrossbúðin var opnuð að Hverfisgötu í Reykjavík. Árið 2002 var búðin svo flutt að Laugavegi 12 þar sem hún er enn. Verslanirnar á höfuðborgarsvæðinu er nú fjórar. Tvær eru á Laugaveginum, ein í Mjóddinni í Breiðholti og ein í Hafnarfirði. Þá eru starfræktar Rauðakrossbúðir á Akureyri, Húsavík, Borgarnesi, Eskifirði, Egilsstöðum, Stöðvarfirði og á Hornafirði.

Á höfuðborgarsvæðinu starfa um 200 sjálfboðaliðar á ári launalaust við söfnun, flokkun og sölu fatnaðarins. Árlega skila sjálfboðaliðar um 19.000 vinnustundum og reikna má með því að þetta framlag sjálfboðaliðanna sé ekki undir 30 milljóna króna virði. 

Rauði krossinn úthlutar fatnaði til um 2.000 einstaklinga á Íslandi á hverju ári. Skjólstæðingar Rauða krossins erlendis njóta einnig góðs af fataverkefninu. Sjálfboðaliðar á Íslandi útbúa einnig árlega mörg þúsund fatapakka með hlýjum fötum fyrir 0-16 ára börn og ungmenni sem sendir eru með öðrum fatnaði til bæði Malaví og Hvíta-Rússlands.

Fatasöfnunin stendur og fellur með dyggum stuðningi Eimskips-Flytjanda, Sorpu og þeirra hundruða sjálfboðaliða sem prjóna, sauma, flokka, pakka og standa vaktina í Rauðakrossbúðunum allan ársins hring.