Fataúthlutun í Reykjavík fer fram að Laugavegi 116 á miðvikudögum kl 10 - 14, gengið inn af bílastæði Grettisgötumegin.
Úthlutunarreglur
Skilríki Allir þurfa að framvísa skilríkjum til að gera grein fyrir sér.
Skráning Skráð verður nafn og kennitala.
Fatnaður Hver einstaklingur getur fengið allt að tvo poka af fatnaði hverju sinni. Fatasöfnunin lætur í té pokana.
Hve oft Sérhver getur fengið úthlutað fjórum sinnum á ári. Að minnsta kosti tveir mánuðir þurfa að líða á milli úthlutana.
Komi upp sérstök tilvik sem krefjast úrlausnar umfram áðurtalda aðstoð skal leita til Rauða kross deildar í viðkomandi sveitarfélagi.