Fataverkefni
Fatasöfnun
Fataúthlutun
Verslanir
Föt sem framlag

Föt sem framlag

ElenaPakki_hvitarussland.jpg
Ungbarnapakkar sem sjálfboðaliðar Rauða krossins um allt land útbjuggu voru sendir til Hvíta Rússlands.

Sjálfboðaliðar á öllum aldri koma saman og hanna, prjóna og sauma fatnað.

Afurðirnar eru seldar á mörkuðum deilda eða í Rauða kross búðunum. Alltaf er þörf fyrir hvers kyns prjónavörur í búðum Rauða krossins jafnt á fullorðna sem börn. Ágóðinn af sölunni skilar sér í Hjálparsjóð.

Fjármunir úr Hjálparsjóðnum nýtast til þróunar- og neyðaraðstoðar erlendis.

Ungbarnapakkar
Sjálfboðaliðar á Íslandi útbúa fatapakka fyrir nýfædd börn sem sendir eru til þróunar- og neyðaraðstoðar erlendis. Sjálfboðaliðar Rauða krossins í viðtökulandinu dreifa barnapökkunum í samráði við heilsugæslustöðvar og mæðraeftirlit.

Innihald
Innihald pakkanna er staðlað og hefur verið valið í samvinnu við skjólstæðinga Rauða krossins. Hver pakki inniheldur: tvær peysur/treyjur, tvær nærskyrtur og tvennar nærbuxur eða tvær samfellur, einar buxur, tvö pör af sokkum, eina húfu, eitt teppi og tvö handklæði (eða eitt handklæði og rakadrægan heimasaumaðan klút af svipaðri stærð).

Fatapakkar fyrir eldri börn
Sjálfboðaliðar deilda útbúa fatapakka fyrir börn á aldrinum 2 - 12 ára sem sendir eru til Hvíta-Rússlands þar sem Rauði krossinn í Hvíta-Rússlandi tekur við þeim og dreifir til þeirra sem á þurfa að halda. Fötin eru flokkuð í pokana eftir kyni, aldri og stærð.

Innihald
Húfa (flís, prjónuð eða annað sambærilegt), vettlingar/hanskar (flís, prjónaðir eða aðrir hlýir), stuttermabolur (bómullarbolur eða annað sambærilegt), sokkar (ullarsokkar, þykkir bómullarsokkar eða annað sambærilegt), peysa (úr ull, flís eða öðru sambærilegu) og buxur (gallabuxur, íþróttabuxur eða sambærilegt).

Frekari upplýsingar veitir deildin á þínu svæði.

Myndband frá afhendingu ungbarnapakka í Hvíta-Rússlandi í lok árs 2009


 

Handavinnuhópur Rauða krossins í Árnessýslu