Geðheilsa
Vin
Laut
Dvöl
Lækur
Félagsvinur barna og unglinga
Skýrslur

Athvörf fyrir fólk með geðraskanir

Rauði krossinn kemur að rekstri athvarfa fyrir fólk með geðraskanir og Konukot fyrir heimilislausar konur. Alls starfa rúmlega 300 sjálfboðaliðar í athvörfum um allt land

Styrkja starfið ged.jpg

Rauði krossinn rekur þrjú athvörf fyrir fólk með geðraskanir á höfuðborgarsvæðinu, Vin í Reykjavík, Læk í Hafnarfirði og Dvöl í Kópavogi, og eitt á Akureyri, athvarfið Laut. Rauði krossinn kemur einnig að rekstri þriggja annarra athvarfa, Setrinu á Húsavík, HVER á Akranesi og svo Vesturafli á Vestfjörðum. Markmið athvarfanna er að rjúfa félagslega einangrun, draga úr fordómum og auka lífsgæði þeirra sem eiga við geðsjúkdóma að stríða.

Lögð er áhersla á að virkja gesti til þátttöku í starfsemi athvarfanna og ákvarðanatöku.Gestir stjórna húsfundum og ganga í flest þau störf sem þörf er á, allt eftir getu hvers og eins. Lögð er áhersla á að draga fram hjá hverjum og einum þá styrkleika sem í honum búa og styðja þannig viðkomandi, þrátt fyrir veikindi og ýmsa erfiðleika, til að ná markmiðum sem þeir setja sér til aukinna lífsgæða.

Reykjavíkurdeild Rauða krossins rekur einnig Konukot, athvarf fyrir heimilislausar konur í Reykjavík. Alls starfa rúmlega 300 sjálfboðaliðar í athvörfum um allt land.
 

Hafið samband til að fá nánari upplýsingar:

Vin, Hverfisgötu 47, sími 561-2612, netfang vin@redcross.is

Dvöl, Reynihvammi 43, sími 554-1260, netfang dvol@redcross.is

Laut, Brekkugötu 34, Akureyri, sími 462-6632, netfang laut@simnet.is

Lækur, Hörðuvöllum 1, Hafnarfirði, simi 566 8600, netfang laekur@redcross.is

HVER, Kirkjubraut 1, Akranesi, sími 431 2040, netfang hver@akranes.is

Ásheimar, Miðvangi 22, Egilsstöðum, sími 470 0795, asheimar@egilsstadir.is

Setrið, Árgötu 12, Húsavík, sími 464 1740

Vesturafl, Mánagötu 6. Ísafirði sími 456 4406, netfang vesturafl@isafjordur.is