Rauði krossinn á Íslandi vinnur að málefnum hælisleitenda í samvinnu við stjórnvöld og í umboði Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna (UNHCR). Rauði krossinn á Íslandi er hluti af alþjóðahreyfingu Rauða krossins og Rauða hálfmánans og er hreyfingin stærsta mannúðarhreyfing veraldar. Hreyfingin er hlutlaus og óhlutdræg og leitast við að vernda og aðstoða fórnarlömb átaka og náttúruhamfara. Líkt og önnur landsfélög hreyfingarinnar gegnir Rauði krossinn á Íslandi ákveðnu stoðhlutverki við stjórnvöld þegar kemur að tilteknum málaflokkum, s.s. á sviði almannavarna, heilsuverndar, velferðar og málefna útlendinga. Stoðhlutverk Rauða krossins við stjórnvöld og samvinna í málefnum hælisleitenda og flóttamanna byggir meðal annars á ofangreindu samkomulagi við innanríkisráðuneytið, samningi við velferðarráðuneytið um aðstoð við þá hælisleitendur sem fá vernd, samstarfi í flóttamannanefnd og hlutverki í vali og móttöku svokallaðra kvótaflóttamanna frá 1956. Að auki er félagið með samstarfssamning við Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna síðan 2001.
Líkt og hreyfingin öll stuðlar Rauði krossinn á Íslandi að eflingu mannúðargilda og virðingu fyrir alþjóðlegum flóttamanna-, mannréttinda- og mannúðarlögum.
Rauði krossinn kemur að málefnum hælisleitenda sem hlutlaus aðili og tekur jafnan ekki afstöðu til hvort krafa hælisleitenda um stöðu flóttamanns eða dvalarleyfi af mannúðarástæðum sé réttmæt eða ekki. Hlutverk Rauða krossins á Íslandi í málefnum hælisleitenda er hins vegar að gæta þess að hælisleitendur fái réttláta málsmeðferð og mannúðlega meðferð og geti lifað mannsæmandi lífi.
Hlutverk landskrifstofu Rauða krossins í málefnum hælisleitenda og flóttamanna byggir á gömlum grunni og grundvallast meðal annars á ofangreindu stoðhlutverki og mikilli þekkingu og langri reynslu félagsins. Sú þekking og reynsla byggir meðal annars á samstarfi og samvinnu við Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna (UNHCR), reynslu hreyfingar Rauða krossins og Rauða hálfmánans af störfum með flóttafólki síðan 1875 og áratuga reynslu starfsfólks og sjálfboðaliða við móttöku og aðlögun flóttafólks á Íslandi.
Starf Rauða krossins á Íslandi að málefnum hælisleitenda hófst árið 1987. Þegar bera fór á fjölgun hælisleitenda hér á landi á árunum 1998 til 1999 var undirritaður samningur á milli Rauða krossins og dómsmálaráðuneytisins sem kvað á um að Rauði krossinn tæki að sér ákveðið hlutverk við móttöku og umönnun þeirra sem sæktu um hæli á Íslandi sem flóttamenn. Samningurinn fól í sér að Rauði krossinn útvegaði hælisleitendum meðal annars húsnæði, framfærslu og lágmarks læknisaðstoð. Í lok árs 2003 rann samningurinn út og umönnunarhlutverkið fluttist yfir til Reykjanesbæjar sem sér nú hælisleitendum fyrir húsnæði, fæði og öðrum nauðsynjum samkvæmt samningi við stjórnvöld.
