Hælisleitendur og flóttamenn
Aðkoma Rauða krossins á Íslandi
Fjöldi flóttamanna og hælisleitenda
Hver er hælisleitandi?
Tölulegar upplýsingar
Hælisleitendur og vegabréf
Greinar og skýrslur

Hælisleitendur og vegabréf

Hælisleitendur sem nota stolin eða fölsuð ferðaskilríki
Samkvæmt 1. mgr. 31. gr. flóttamannasamningsins njóta flóttamenn og hælisleitendur vernd gegn sakhæfi fyrir að hafa í fórum sínum eða framvísa stolnum eða fölsuðum vegabréfum og mega viðkomandi stjórnvöld ekki beita refsingum gagnvart hælisleitendum eða flóttamönnum. Það skal ekki hafa áhrif á umsókn viðkomandi þótt framvísað hafi verið fölsuðum eða stolnum skilríkjum við komu til landsins. Sama gildir þótt hælisleitandi framvísi engum skilríkjum. Þetta stafar af því að ríki þau sem hælisleitendur koma frá eru oft ófús að gefa út vegabréf og því er þeim oft sá einn nauðugur kostur að verða sér út um fölsuð eða stolin vegabréf/skilríki til að koma sér úr landi og freista þess að öðlast stöðu flóttamanns í öðrum ríkjum.

1. mgr. 31. gr. flóttamannasamningsins hljóðar svo:

Aðildarríkin skulu ekki beita refsingum gagnvart flóttamönnum vegna ólöglegrar komu þeirra til landsins eða vistar þar, ef þeir koma beint frá landi, þar sem lífi þeirra eða frelsi var ógnað í merkingu 1. gr., og koma inn í lönd þeirra eða eru þar án heimildar, enda gefi þeir sig tafarlaust fram við stjórnvöldin og beri fram gildar ástæður fyrir hinni ólöglegu komu sinni eða vist þar.

Við breytingu á lögum um útlendinga nr. 96/2002 var í 57. gr. bætt við nýjum staflið, h-lið, þar sem það er gert refsivert að hafa í vörslu sinni stolið eða falsað vegabréf, falsað skilríki eða falsaða vegabréfsáritun. Meiri hluti allsherjarnefndar sem hafði frumvarp laganna til umsagnar tók það skýrt fram í umsögn sinni að á engan hátt væri 16. gr. h. lið beint gegn flóttamönnum,

  1. „enda væri þá með sama hætti hægt að segja að gildandi ákvæði um það að notkun falsaðra vegabréfa sé refsiverð væri sama marki brennd. Flóttamenn hafa hvorki verið ákærðir né dæmdir hér á landi fyrir notkun falsaðra vegabréfa og er það skýrt í augum meiri hlutans [sic] að það sama verður uppi á teningnum hvað varðar vörslu þeirra. Ákvæði frumvarpsins er eingöngu beint gegn þeim sem stunda skipulegan innflutning á fólki, mansal og slík afbrot.“