Heimsóknavinaverkefni Rauða krossins er eitt stærsta og útbreiddasta verkefni félagsins. Alls starfa rúmlega 550 sjálfboðaliðar um allt land við heimsóknaþjónustu Rauða krossins. Um gífurlega fjölbreytt starf er að ræða þar sem það er sérsniðið að þörfum og óskum þeirra einstaklinga sem heimsóttir eru. Þar getur verið um einstaklinga að ræða eða hópa, og sú nýjung að bjóða upp á heimsóknir með hunda hefur slegið í gegn á liðnum árum.
Hlutverk heimsóknavinar er fyrst og fremst að veita félagsskap, nærveru og hlýju. Einsemd er alvarlegt vandamál í íslensku samfélagi. Aðstæður fólks geta orðið til þess að það missir samband við aðra og einangrast. Heimsóknavinir Rauða krossins leitast við að rjúfa slíka einangrun.
Hvar og hvernig?
• Almennar heimsóknir s.s. á heimili, stofnanir, dvalar – og hjúkrunarheimili,
ökuvinir og hundavinir.
• Heimsóknir til fanga
• Heimsóknir til geðfatlaðra
• Heimsóknir til hælisleitenda
Hvað gera heimsóknavinir?
Þeir geta talað saman, hlustað, spilað, föndrað, farið saman út að ganga, í bíó, á kaffihús, farið saman út að keyra eða t.d. fengið hund í heimsókn til sín. Mikilvægt er að geta tekið hverjum og einum eins og hann er, fyrirkomulag heimsóknarinnar er samkomulag.
Sjálfboðaliðar sem heimsækja fara á sérstakt námskeið hjá Rauða krossinum.
Ef þú vilt verða heimsóknavinur skaltu sækja um að verða sjálfboðaliði Rauða krossins.
Ef þú hefur áhuga á að fá nánari upplýsingar hafðu þá samband við deildina á þínu svæði.
Hér er hægt að sjá brot úr fræðslumynd sem sýnd er á námskeiðum sjálfboðaliða: