Tæplega 100 manna hópur sjálfboðaliða starfar við símsvörun hjá Hjálparsíma Rauða krossins 1717. Allir hafa farið í gegnum yfirgripsmikla fræðslu, námskeið og þjálfun áður en þeir byrja. Meðal markmiða Hjálparsímans er að hlusta á og veita ráðgjöf fólki á öllum aldri, fólki sem þarf á stuðningi að halda t.d. vegna þunglyndis, kvíða eða vanlíðunar.
Árið 2010 bárust 23.782 símtöl til Hjálparsímans og voru flest þeirra, eða 9.130, flokkuð undir sálræn mál, þ.e. fólk sem hringir óskar fyrst og fremst eftir sálrænum stuðningi. Fjölmörg mál voru flokkuð sem félagsleg, s.s. samskiptaörðugleikar, afbrot, ástarmál, atvinnuleysi, fjármál, forræðisdeilur, húsnæðismál, skilnaðir o.fl. Þá voru mörg mál vegna heilbrigðismála, ofbeldis, kynferðismála og mála sem tengdust áfengis- og fíkniefnaneyslu.
Þá gegnir Hjálparsími Rauða krossins 1717 hlutverki sem upplýsingasími þegar neyðarástand varir, s.s. í jarðskjálftum eða eldgosum þegar rýma þarf stór svæði. Þar eru m.a. veittar upplýsingar aðstandendum sem spyrjast fyrir um afdrif skyldmenna og vina. Númerið er gjaldfrjálst úr öllum símum og ekki kemur fram á símreikningi að hringt hafi verið í númerið. Einnig er hægt að hringja í 1717 án inneignar í gsm-símum.
Ef þú hefur áhuga á að svara í Hjálparsíma Rauða krossins þá geturðu skráð þig hér á vefnum og fulltrúi Rauða krossins mun hafa samband.