Rauði kross Íslands hefur síðustu 10 ár lagt sérstaka áherslu á málefni innflytjenda. Starf Rauða krossins með þessum hópi lýtur bæði að aðstoð við innflytjendur með sérstökum verkefnum sem hjálpar þeim að fóta sig betur í íslensku samfélagi og eins að því að fá innflytjendur til liðs við Rauða krossinn og taka þannig virkan þátt í stefnumótun félagsins.
Þá hefur Rauði krossinn útvegað svokölluðum flóttamönnum, þeim hópum flóttamanna sem ríkisstjórn Íslands hefur boðið sérstaklega til landsins á undanförnum árum, stuðningsfjölskyldur sem aðstoða við aðlögun að íslensku samfélagi.
Um 255 sjálfboðaliðar Rauða krossins vinna að verkefnum með innflytjendum.
Vefur Rauða krossins fyrir innflytjendur er www.raudikrossinn.is/immigrants