Tilgangurinn með leitarþjónustu Rauða krossins er að stuðla að endurfundum fjölskyldna og þannig draga úr átakanlegum afleiðingum ófriðar.
Þú býrð í friðsælu landi. Ættingi þinn býr í landi þar sem ófriður ríkir. Þú hefur áhyggjur af honum. Hvað geturðu gert?
Þú býrð á átakasvæði. Þú hefur heyrt að ættingi þinn hafi komist burt af átakasvæðinu til friðsæls lands – kanski Íslands. Þú vilt fá fréttir af honum. Hvað geturðu gert?
Af öllum þeim hörmungum sem stríð leiðir yfir mannfólkið þá er fátt jafn sársaukafullt og barn sem hefur orðið viðskila við foreldra sína, bróðir sem hefur týnst á vígaslóð eða kona sem veit ekki hvar eiginmaður hennar er.
Svarið við spurningunum að ofan er í báðum tilvikum: þú getur haft samband við leitarþjónustu Rauða krossins. Alþjóðaráð Rauða krossins og landsfélög Rauða krossins um allan heim starfrækja leitarþjónustu sem hjálpar fjölskyldumeðlimum sem hafa orðið viðskila að finna hver annan.
Ef þú þarft að leita aðstoðar leitarþjónustu Rauða krossins skaltu skrifa póst til Rauða krossins á Íslandi.
Ef póstsamgöngur eru óvissar geta viðkomandi líka sent hver öðrum skilaboð í gegnum skilaboðaþjónustu Rauða krossins. Stundum dugar að skrifa fjögur orð: “ég er á lífi.” Á hverju ári meðhöndlar Rauði krossinn um 500.000 skilaboð. Langflest, en því miður ekki öll, komast til skila. Um ein af hverjum átta skilaboðum eru frá stríðsföngum, eða til þeirra, en flest skilaboðin eru skrifuð af óbreyttum borgurum sem hafa á einhvern hátt orðið fyrir barðinu á ófriði.
Á árinu 2001 skráðu starfsmenn og sjálfboðaliðar Rauða krossins 3.064 börn sem höfðu annað hvort orðið viðskila við, eða misst, foreldra sína í tengslum við átök. Á sama ári tókst að koma 1.178 börnum aftur til foreldra sinna en við árslok voru enn 4.826 börn á skrá sem ekki var búið að koma í heimahús.
Á undanförnum árum hefur Rauði krossinn tekið tæknina í þjónustu sína. Tölvuskrár halda utan um nöfn tugþúsunda manna sem saknað er úr ýmsum stríðum – af Balkanskaga, í Miðausturlöndum og í Afríku. Þegar átök blossa upp og fjölskyldur tvístrast er reynt að gefa fólki kost á að tala saman í síma. Sömu aðferðum er stundum beitt eftir miklar náttúruhamfarir.
Leitarvefur Alþjóða Rauða krossins / ICRC tracing website