Leiðarljós Rauða krossins á Íslandi
Rauði krossinn bregst við neyð jafnt innanlands sem utan og veitir aðstoð er gerir fólk hæfara til að takast á við erfiðleika og bregðast við áföllum. Félagið stendur vörð um mannréttindi og virðingu einstaklinga.
Áhersla Rauða krossins
Rauði krossinn virkjar það skipulag, sem komin er reynsla á í kerfi almannavarna, til þess að bregðast við annarri skyndilegri neyð, svo sem vegna húsbruna, umferðarslysa eða dauðsfalla af öðrum orsökum.
Skilgreining á neyðaraðstoð
Neyðaraðstoð er aðstoð vegna óvæntra atburða/áfalla sem raska daglegu lífi fólks svo mikið að það getur ekki ráðið fram úr þeim sjálft. Um er að ræða tímabundna aðstoð og skal viðmiðið vera tveir sólarhringar.
Deildir Rauða krossins á Íslandi, sem eru 49 um allt land veita einstaklingum í erfiðleikum aðstoð. Stór hluti þeirrar aðstoðar er veittur í desembermánuði, gjarnan í samvinnu við Mæðrastyrksnefndir og / eða Hjálparstarf kirkjunnar á hverjum stað. Í nær öllum tilvikum er neyðaraðstoð veitt í samstarfi við félagsþjónustu, prest eða önnur líknarfélög og samkvæmt ábendingum frá þessum aðilum.