Neyðarvarnir
Fjöldahjálparstöðvar
Samkomulag við almannavarnir
Neyðarvarnaáætlanir Rauða kross deilda
Útgefið efni
Greinar, skýrslur og myndir
Almannavarnir
Inflúensa besta vörnin

Fjöldahjálparstöðvar

fjoldahjalp_merki_vef_jpg.jpg

Fjöldahjálparstöðvar eru starfræktar á neyðartímum til að bjóða þolendum náttúruhamfara og annarra alvarlegra atburða öruggt skjól. Þar er þeim séð fyrir helstu grunnþörfum svo sem mat, fatnaði og húsaskjóli. Einnig er gert ráð fyrir að í boði sé ýmis frekari þjónusta svo sem skyndihjálp, sálrænn stuðningur, sálgæsla, ráðgjöf og upplýsingar.

Mörg hundruð sjálfboðaliða Rauða krossins eru þjálfuð í að starfrækja fjöldahjálparstöðvar og sækja meðal annars námskeið á fimm ára fresti til að viðhalda þekkingunni.

Fjöldahjálparstöðvar eru í flestum tilfellum staðsettar í skólum en einnig má gera ráð fyrir að opna þurfi fjöldahjálparstöðvar í félagsheimilum, samkomuhúsum, hótelum eða íþróttahúsum. Allt fer þetta eftir aðstæðum hverju sinni.

Einfaldar leiðbeiningar um opnun fjöldahjálparstöðvar (bæklingur)

Basic instructions about emergency Shelters

Staðsetning fjöldahjálpastöðva á landinu.

 


View Fjöldahjálparstöðvar in a larger map