Samkomulag Ríkislögreglustjóra við Rauða krossinn um hjálparlið almannavarna kveður á um hlutverk landsskrifstofu Rauða krossins og einstakra deilda hans í heildarskipulagi vegna almannavarna og skilgreinir tengsl stjórnskipulags Rauða krossins við skipulag almannavarna á hættu- og neyðartímum.
Almannavarnir hafa haft skriflegt samkomulag við Rauða krossinn síðan 1974 um hlutverk félagsins innan almannavarna og er samkomulagið í raun kjarninn í öllu neyðarvarnakerfi Rauða krossins.
Með gildistöku nýrra laga um almannavarnir í júní 2008 öðlaðist Rauði kross Íslands lagalegar skyldur innan almannavarna og nýja samkomulagið tekur mið af þeim. Í lögunum er ríkislögreglustjóra gefið vald til að semja við félagasamtök um framkvæmd almannavarna á ákveðnu sviði. Slíkir samningar eru háðir samþykki innanríkisráðherra og því þurfa þeir báðir að skrifa undir samninginn fyrir hönd stjórnvalda.