Rauði krossinn á Íslandi sinnir fjöldahjálp og félagslegu hjálparstarfi samkvæmt samningi við Almannavarnir ríkisins. Rauða kross deildir opna fjöldahjálparstöðvar á hættu- og neyðartímum þar sem fólki er veitt fyrsta aðstoð svo sem upplýsingar, fæði og klæði og sameining fjölskyldna fer fram. Rauði krossinn bregst einnig við skyndilegum áföllum utan almannavarnaástands eins og húsbrunum og flóðum.